Stórsöngvarinn Morrissey stendur í undarlegum deilum við útgáfufyrirtæki sitt þessa daganna en hann heldur því fram að fyrirtækið Capitol Records hafi sagt upp plötusamningi sínum þrátt fyrir að fyrirtækið neiti þessum fréttum. Morrissey sendi svo frá sér nýja yfirlýsingu á dögunum þar sem hann segist hafa sannanir fyrir því að hann sé ekki samningsbundinn Capitol Records lengur og að auki hafi hann aldrei undirritað neinn samning. En Morrissey kom sér einmitt á vandræði fyrir skömmu síðan þegar að hann sagði að sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver ætti skilið að vera sendur í gasklefa vegna þess að hann hefði drepið fleiri dýr en McDonalds.
Samkvæmt Red Hot Chili Peppers gítarleikaranum Josh Klinghoffer er hljómsveitin þegar byrjuð að vinna að 28-30 lögum fyrir næstu plötu sína. Klinghoffer staðfesti einnig að hljómsveitin sé þegar byjuð að taka upp í hljóðveri án þess þó að vera með próduser. Sagði hann hljómsveitin semja upp á hvern einasta dag. Það er því vel mögulegt að ný plata með Red Hot Chili Peppers líti dagsins ljós árið 2015.

Nú styttist óðum í Menningarnæturtónleika X977 og Bar 11 sem fara fram í portinu á bakvið Bar 11 laugardaginn 23.ágúst. Þær hljómsveitir sem koma fram að þessu sinni eru: Kaleo, Sólstafir, Dimma, Agent Fresco, Emmsjé Gauti, Vínyll, Reykjavíkurdætur, Úlfur Úlfur, Art Is Dead, Endless Dark og Major Pink. Herlegheitin hefjast klukkan 14:00 og standa tónleikarnir yfir þangað til 23:00.