Ólympíuskákmótinu lauk með andláti skákmanns Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. ágúst 2014 23:34 Vísir/AFP
Leikmaður skákliðs Seychelles-eyja hné niður og lést í dag, á lokadegi Ólympíuskákmótsins í Tromsö. Skákmaðurinn, Kurt Meier, fékk hjartaáfall en hann var 65 ára að aldri. Læknar á keppnisstað reyndu lífgunartilraunir sem mistókust. Sonur Meirs tefldi við hlið hans þegar atvikið átti sér stað. Mótið hafði staðið yfir í tólf daga og alla jafna voru 650 skákir í gangi samtímis í keppnissalnum. Flestum viðureignum dagsins hafði lokið þegar Kurt Meier hneig til jarðar. Margir viðstaddra brustu í grát í kjölfar fregnanna og nokkrir liðsfélagar Meiers eru sagðir hafa orðið vitni að andlátinu. Mínútuþögn fór fram í lokaathöfn mótsins vegna sviplegs andláts seychelles-eyska skákmannsins. Kínverjar urðu Ólympíumeistarar í opnum flokki og Rússar í kvennaflokki. Í opnum flokki hafnaði Ísland í 39. sæti og íslenska kvennaliðið í 55. sæti.
Seychelleseyjar Skák Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Flugferðum aflýst Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Erlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Fleiri fréttir Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Sjá meira