Erlent

Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum

Jón Þór Stefánsson skrifar
Arnarhreiður Hitlers.
Arnarhreiður Hitlers. Getty

Eitt sögufrægasta hús Þýskalands Arnarhreiður Adolfs Hitler, stendur í ljósum logum.

Bild greinir frá þessu.

Lögreglu grunar að um íkveikju hafi verið að ræða, en þó eru eldsupptök óljós að svo stöddu. Einn hefur verið handtekinn.

Slökkvistarf á vettvangi mun vera umfangsmikið. Enginn er talinn hafa verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði.

Mynd úr vefmyndavél á svæðinu.bergfex.de

Húsið, sem heitir á þýsku Kehlsteinhaus, er staðsett á fjallinu Kehlstein í Bæjaralandi ofan við bæinn Berchtesgaden, sem er við Alparætur. Um er að ræða einn vinsælasta ferðamannastað Þýskaland.

Húsið var byggt á árunum 1937 til 1938 sem sumarhús fyrir Adolf Hitler. Hann er þó sagður hafa dvalið þar sjaldan, heldur hafi markmiðið með byggingunni verið að heilla erlenda gesti og diplómata.

Húsið komst nokkuð óskaddað í gegnum Seinni Heimsstyrjöldina. Á síðustu árum hefur það verið notað sem safn um Þýskaland nasismans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×