Kostnaður vegna rannsóknarnefnda 1400 milljónir 25. ágúst 2014 18:39
Fjárlaganefnd Alþingis fundaði í morgun vegna kostnaðar við rannsóknarnefndir Alþingis. Kostnaður vegna rannsóknar á falli íslensku bankanna var alls 454 milljónir króna og kostnaður vegna rannsóknar á Íbúðalánasjóð alls rúmar 249 milljónir, en var upphaflega áætlaður 70 milljónir. Þá var kostnaður vegna rannsóknar á falli Sparisjóðanna tæpar 678 milljónir en nefndin skilaði af sér þann 10. apríl síðastliðinn, tæpum tveimur árum seinna en áætlað var. Alls er kostnaðurinn vegna þessara þriggja nefnda 1382 milljónir króna, langt yfir þeim áætlunum sem gert var ráð fyrir. Í minnisblaði sem lagt var fram á fundi fjárlaganefndar í morgun kemur fram að kostnaður vegna rannsóknar á falli sparisjóðanna á þessu ári, nemi tæpum 130 milljónum króna, en ekki er gert ráð fyrir fjárveitingu vegna þessa í fjárlögum ársins 2014.„Það sem vekur athygli manns þegar að maður skoðar þetta, er að það er eins og menn læri ekki neitt. Það voru gerð mistök hvað varðar áætlanagerð og eftirfylgni og eftirlit Alþingis í fyrstu skýrslunni, í annarri skýrslunni og svo sannarlega í þriðju skýrslunni. Þetta er ótrúlegt mál og það er auðvitað alltaf leiðinlegt þegar að menn gera mistök og fara fram úr áætlunum, en það er ennþá verra þegar að menn læra ekkert af mistökunum,” segir Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Guðlaugur segir mikilvægt að fara yfir málið áður en önnur rannsóknarnefnd tekur til starfa. Mynda þurfi ramma utan um rannsóknir sem þessar þannig að ekki verði opnaðar flóðgáttir fyrir framúrkeyrslur sem þessar.„Þeir sem borga fyrir þetta allt saman eru skattgreiðendur, og þeir eiga betra skilið,” segir Guðlaugur.
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira