Almar nýr framkvæmdastjóri SI Bjarki Ármannsson skrifar 25. ágúst 2014 10:21 Almar Guðmundsson. Vísir/Anton
Almar Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI). Hann tekur við af Kristrúnu Heimisdóttur sem lét af störfum í síðustu viku eftir aðeins níu mánuði í starfi. Hann hefur undanfarin fimm ár verið framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda en áður starfaði hann við ýmis stjórnunarstörf innan Íslandsbanka. Hann er formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar í Garðabæ en hefur einnig á undanförnum árum fengist við kennslu við Háskólann í Reykjavík. Almar er kvæntur Guðrúnu Zoëga hjúkrunarfræðingi og eiga þau fimm börn. Hann er bróðir Sigmars Guðmundssonar sjónvarpsmanns. „Samtök iðnaðarins bjóða Almar hjartanlega velkominn til starfa. Við væntum mikils af ráðningu hans en framundan hjá samtökunum eru bæði spennandi og krefjandi verkefni nú þegar við sjáum að íslenskt efnahagslíf er að rétta úr kútnum eftir erfið ár,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI í tilkynningu. „Samtök iðnaðarins eru stór og sterk samtök og það er mikilvægt að rödd iðnaðarins fái að hljóma svo að atvinnulífið og samfélagið allt megi blómstra. Á bakvið Samtök iðnaðarins er fjöldi bæði stórra og smárra fyrirtækja sem saman mynda undirstöðu framfara og framleiðni í landinu. Ég hlakka til að vinna með aðildarfyrirtækjum, stjórn og starfsmönnum SI að þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru í íslensku atvinnulífi,“ segir Almar í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Lætur af störfum eftir níu mánuði í starfi Kristrún Heimisdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins samkvæmt samkomulagi við stjórn samtakanna. 19. ágúst 2014 09:38 Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira
Lætur af störfum eftir níu mánuði í starfi Kristrún Heimisdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins samkvæmt samkomulagi við stjórn samtakanna. 19. ágúst 2014 09:38