Tíska og hönnun

Sjálfbær tískusmiðja á Menningarnótt

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Hér má sjá Brynju auglýsa svuntu sem hún hannaði.
Hér má sjá Brynju auglýsa svuntu sem hún hannaði.
Brynja Emilsdóttir, textíl- og fatahönnuður verður með viðburð á Menningarnótt í Kirsuberjartrénu á Vesturgötu 4. Hún mun kenna gestum og gangandi að búa til margnota innkaupatöskur úr gömlum efnum og fötum.

„Afraksturinn er glæný taska sem spara plastpokanotkun og hlífir umhverfinu,“ segir Brynja um þessa umhverfisvænu hönnun. Auglýst er eftir efnum og afgöngum í verkefnið en tekið verður við þeim í Kirsuberjatrénu.

Með þessu segist Brynja vilja vekja fólk til umhugsunar um plastpokanotkun og eigið vistspor, vekja áhuga fólks á sjálfbærum lífsstíl og kenna fólki að gefa gömlu efni nýtt líf, meðal annars.



Brynja segist algjörlega ætla að sníða stakk eftir vexti. „Sennilega mun kosta inn 1000 kr. á haus til að fá að gera sína tösku þar sem þrykklitir og fleira kosta mig pening.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.