Pete Doherty, forsprakki The Libertines, segist vera afar spenntur fyrir að fá Jack White til að pródúsera næstu plötu hljómsveitarinnar. En The Libertines hafa nýlega tilkynnt að þeir stefna á að gefa út nýja plötu á næsta ári sem yrði þeirra fyrsta síðan árið 2004. Þetta sagði Doherty í viðtali við frönsku sjónvarpsstöðina D8 en þar sagði hann jafnframt að Jack White hefði sjálfur lýst yfir áhuga á að vinna með hljómsveitinni. Talsmaður Jack White staðfesti hinsvegar við NME að hann hefði aldrei lýst yfir áhuga á að vinna með The Libertines og um hreina ímyndun væri að ræða hjá Pete Doherty.
Eins og fram kom í Púlsinum fyrir nokkrum vikum síðan ákvað Foo Fighters aðdáandinn Andrew Goldin að setja söfnun í gang til að fá Foo Fighters til að halda tónleika í bænum Richmond í Virginia fylki. Hann bjó því til „crowdsurfing“ síðu sem meðlimir Foo Fighters tóku vel í og þeir hafa nú skipulagt tónleika í Richmond þann 17.sept næstkomandi. En tónleikarnir fara fram á stað sem tekur 1.500 manns. Foo Fighters tilkynntu um þetta með Twitter færslu og báðu þá alla sem lögðu söfnuninni lið á sínum tíma að kíkja í pósthólfin sín. Dave Grohl hefur einnig sagt að slíkir tónleikar kunni að vera framtíðin í tónleikahaldi. En Foo Fighters gefa svo út plötuna Sonic Highways þann 10.nóvember.

The Black Keys eru nú þegar orðnir tilbúnir til þess að taka upp næstu plötu en þetta sagði trommarinn Patrick Carney í viðtali við Billboard vefinn. Hann sagði báða meðlimi The Black Keys vera tilbúna til þess að fara aftur í hljóðver en reiknaði með að þeir þyrftu eitthvað að bíða með það útaf tóneikaferðum sem þeir hafa þegar bókað. Carney sagði að aðalmarkmið hljómsveitarinnar hefði ávallt verið að gefa út plötur og höfðu þeir t.d. aldrei haldið tónleika áður en að fyrsta plata þeirra kom út.
Í kvöld stækkar Funkþátturinn sjóndeildarhringinn sinn en þá kemur Johann Stone í heimsókn til að segja frá lífinu í trans-heimum, en Johann Stone nýtur mikilla vinsælda í þeirri senu á alþjóðavettvangi og er með útgáfusamning við stærsta plötufyrirtækið í geiranum. Funkþátturinn er öll fimmtudagskvöld frá 23 á Xinu.