Eiður Aron skoraði í Íslendingaslag Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. september 2014 19:05 Eiður Aron spilaði fyrri hluta leiktíðarinnar með ÍBV. VÍSIR/STEFÁN
Eiður Aron Sigurbjörnsson var í byrjunarliði Sandnes Ulf ásamt landsliðsmarkverðinum Hannesi Þór Halldórssyni og framherjanum Hannesi Þ. Sigurðssyni í Íslendingaslag gegn Brann í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Eyjamaðurinn tók sig til og skoraði eftir hornspyrnu á 52. mínútu, en því miður fyrir botnliðið tókst Hannesi Þór ekki að halda hreinu.Birkir Már Sævarsson og félagar í Brann jöfnuðu metin eftir harða hríð að marki gestanna, en varamaðurinn AminAskar skoraði jöfnunarmarkið á 63. mínútu. Birkir kom einnig inn á sem varamaður. Brann er í 13. sæti af 16 liðum í norsku úrvalsdeildinni með 23 stig, en Sandnes er í botnsætinu með 15 stig, sex stigum frá umspilssæti. Í Danmörku var Theodór Elmar Bjarnason í byrjunarliði Randers og spilaði allan leikinn í 1-0 sigri á Silkeborg. Randers komst upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum. Ögmundur Kristinsson sat á varamannabekk Randers.Hjálmar Jónsson var einnig á bekknum hjá IFK Gautaborg sem vann stórsigur á Gefle, 4-0. Gautaborgarliðið búið að vinna fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og er í fjórða sæti deildarinnar með 41 stig. Skúli Jón Friðgeirsson var ekki í leikmannahópi Gefle.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira