Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - ÍR 24-29 | ÍR yfirspilaði Íslandsmeistarana Guðmundur Tómas Sigfússon í Eyjum skrifar 22. september 2014 14:35 Andri Heimir Friðriksson, leikmaður ÍBV. vísir/stefán
ÍR-ingar sóttu tvö stig til Vestmannaeyja gegn Íslandsmeisturum ÍBV í kvöld. Gestirnir voru betri á öllum sviðum og héldu Eyjamönnum langt frá sér. Gestirnir gáfu tóninn strax í byrjun en þeir skoruðu úr sex af fyrstu átta skotunum og voru þá fjórum mörkum yfir. Munurinn var lengst af fimm mörk í fyrri hálfleik en ÍR-ingar spiluðu frábæra vörn. Mestur varð munurinn sex mörk í fyrri hálfleik, en staðan að honum loknum var 12-16. Eyjamenn virtust ekki eiga nein svör við varnarleik ÍR-inga og voru oftar en ekki þvingaðir í mjög erfið skot af níu metrum. ÍR-ingar skiptu snemma um markvörð og varði Svavar Már Ólafsson frábærlega í markinu. Að sama skapi fundu ÍR-ingar mörg svör við vörn Eyjamanna sem hefur verið gríðarlega öflug. Oftar en ekki fengu stórskyttur gestanna færi innan við punktalínu og markverðir ÍBV vörðu varla skot. Í byrjun seinni hálfleiks virtust Eyjamenn vera með stemninguna sín megin en komust þó ekki nær en tvö mörk. Þá kom kafli þar sem allt gekk upp hjá gestunum en gjörsamlega ekki neitt hjá Eyjamönnum. Á þessum fimm mínútna kafla skoruðu gestirnir fimm mörk. Svavar Már varði fjögur skot og Eyjamenn tóku tvívegis leikhlé. Munurinn varð svo átta mörk þegar Bjarni Fritzson tróð sokk upp í stúkuna með hraðaupphlaupum sínum. Stuðningsmenn Eyjamanna voru duglegir að láta alla vita að Bjarni hefði keypt silfrið. Þetta virtist einungis efla Bjarna sem spilaði frábærlega, en hann skoraði átta mörk úr tíu skotum. Þegar innan við tíu mínútur voru eftir kom Hákon Daði Styrmisson inn á völlinn. Hann byrjaði á að skora úr víti fyrir Eyjamenn og á eftir því fylgdu tvö hraðaupphlaup. Þá munaði fjórum mörkum á liðunum og ennþá fimm mínútur eftir. ÍR-ingar sýndu svo gríðarlega fagmennsku í að klára leikinn og lokatölur urðu 24-29. Gestirnir því með þrjú stig að loknum tveimur leikjum við Valsmenn og Eyjamenn.Gunnar Magnússon: Varla bolti varinn fyrstu 45 mínúturnar „Það fór nánast allt úrskeiðis. Það stóð ekki steinn yfir steini og í dag brotnuðum við. Vorum í miklum vandræðum í vörn og sókn. Við verjum varla bolta fyrstu 45 mínúturnar,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Íslandsmeistaranna, eftir svekkjandi tap úti í Eyjum. „ÍR-ingar voru betri en við á öllum sviðum og mættu klárir í leikinn.“ Það var mikill munur á liðinu frá því í leiknum gegn FH-ingum. Gunnar var ekki viss hvort um þreytu væri að ræða en hann hélt að liðið hefði reynslu í því að tækla svona leikjaálag. Hann vildi þó ekki skrifa tapið á þreytu en nefndi að hausinn á mönnum væri kannski ekki alveg eins og hann ætti að vera. Eyjamenn hafa tapað fjórum af fyrstu fimm leikjum leiktíðarinnar og ekki enn náð að sigra. „Við þurfum að bæta okkur á milli leikja. Svona er staðan í dag, við erum ekki betri en þetta. Við eigum nokkra lykilmenn inni, sem voru gjörsamlega úti á þekju í dag.“ Kolbeinn Aron Arnarson var ekki í leikmannahópi liðsins í dag en Gunnar segist eiga þrjá góða markmenn sem berjast um stöðuna. „Þetta eru þrír markmenn að berjast um stöðuna. Hann var undir í þeirri samkeppni fyrir leikinn í dag.“Bjarni Fritzson: Vorum helvíti góðir „Jú við vorum bara helvíti góðir. ÍBV gáfust allavega aldrei upp, voru alltaf tilbúnir að narta í hælana á okkur þegar við gáfum eftir. Þetta féll svona aðeins fyrir okkur í dag,“ sagði Bjarni Fritzson, spilandi þjálfari ÍR-inga. Bjarni átti frábæran leik í kvöld og skoraði átta mörk. „Mér fannst því miður koma smá kæruleysi á köflum. Við vorum aðeins að detta úr „concepti“ og aðeins að slaka á. Þá komu þeir strax að refsa, þetta lið er eitt það albesta í deildinni og ekkert veikari en í fyrra.“ Margir eru á því að lið ÍBV hafi veikst gríðarlega eftir að Róbert Aron Hostert fór út í atvinnumennsku. Bjarni vill þó ekki meina það. „Ég er mjög ánægður með mína menn, vörnin var frábær, markvarslan var mjög góð. Sóknarleikurinn var frekar fínn miðað við hversu frábærri vörn við vorum að spila á móti.“
Olís-deild karla Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Enski boltinn Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Körfubolti „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Enski boltinn Fleiri fréttir Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Sjá meira