Hæstiréttur staðfestir að ríkið þurfi að greiða Vífilfelli 80 milljónir Stefán Árni Pálsson skrifar 9. október 2014 16:35 visir/gva
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að íslenska ríkið skuli greiða Vífilfelli til baka 80 milljónir sem fyrirtækið hafði greitt í stjórnvaldssekt. Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið þarf einnig að greiða fyrirtækinu 1,5 milljónir í málskostnað fyrir Hæstarétti. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður snúið við úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála þess efnis að Vífilfell hafi brotið gegn samkeppnislögum og var íslenska ríkið dæmt til að greiða Vífilfelli til baka 80 milljónir króna sem fyrirtækið hafði greitt í stjórnvaldssekt. Samkeppniseftirlitið komst upphaflega að þeirri niðurstöðu að Vífilfell hefði brotið gegn ákvæðum um bann við misnotkun á markaðsráðandi stöðu og gert fyrirtækinu að greiða 260 milljónir í stjórnvaldssekt. Fyrirtækið hafði ekki greitt þá upphæð að fullu og því fær Vífilfell 80 milljónir greitt til baka. Málið snerist um samninga Vífilfells við birgja þar sem viðsemjendur skuldbundu sig til að bjóða eingöngu upp á vörur frá Vífilfelli en auk þess skoðaði Samkeppniseftirlitið ákvæði samninga sem virtust viðhalda tryggð endursöluaðila við vörur fyrirtækisins. Taldi Samkeppniseftirlitið að viðskiptasamningar Vífilfells hefðu að geyma ákvæði þar sem viðsemjendur fyrirtækisins skuldbundu sig til að tryggja Vífilfelli hillupláss, framsetningu og aðra stöðu sem virtist ætlað að viðhalda og styrkja markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins. Í öðrum samningum skuldbundu viðsemjendur áfrýjanda sig til að bjóða eingöngu upp á vörur frá Vífilfelli og einhverjum ákvæðum var ætlað að viðhalda tryggð endursöluaðila við vörur fyrirtækisins.Uppfært 17:20 Í tilkynningu frá Vífilfelli segir að Vífilfell lýsi yfir ánægju sinni með dóm Hæstaréttar og fagni því „að niðurstaða sé loks fengin í málið, meira en 7 árum eftir að Samkeppniseftirlitið hóf að eigin frumkvæði athugun sína. Dómurinn er í samræmi við væntingar okkar en ákvörðun Samkeppniseftirlitsins á sínum tíma kom okkur á óvart. Við höfum frá upphafi talið að málarekstur Samkeppniseftirlitsins sé ekki á rökum reistur og hefur það nú fengist staðfest. Við væntum þess að málið sé nú að baki og við hlökkum til að geta tekið þátt í samkeppni á jafnræðisgrundvelli.“
Mest lesið Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Neytendur Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Fleiri fréttir Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Sjá meira