Reiknar með því að fá 990 króna gjald til baka Samúel Karl Ólason skrifar 2. október 2014 15:30 Vísir/Pjetur „
Ég vil fá endurgreitt og á von á að þeir muni bjóða mér það,“ segir Herdís Herbertsdóttir. Hún fór nýverið með 1.062 krónur í smámynt í sjálfvirka talningarvél Arion banka í Kringlunni. Bankinn tók þó 990 krónur í gjald fyrir talninguna, svo hún fékk einungis 72 krónur. Í samtali við Vísi segist Herdís vita til þess að starfsmenn Arion banka hafi hringt heim til sín í dag og reynt að ná sambandi við sig. Þó hafi hún gefið upp farsímanúmer sitt þegar hún bar fram kvörtun vegna gjaldtökunnar. Hún segist vilja fá gjaldið endurgreitt. „Ég á von á því að þeir ætli að bjóða mér það. Mér finnst líklegt að það hafi verið erindið, en ég mun allavega óska eftir því.“ Hún segist hafa kvartað þegar hún varð vör við hve hátt gjaldið var. „Ég sagði að mér þætti þetta algerlega óásættanlegt og þeir sögðu bara því miður. Starfsfólkið var þó kurteist og fínt. Það var ekki vandamálið. Það var bara þessi gjaldskrá sem var svona arfavitlaus og alveg ótrúlegt að hún hafi verið látin viðgangast.“Bára Mjöll Þórðardóttir.Mynd/Arion BankiArion-banki felldi niður gjaldið Bára Mjöll Þórðardóttir hjá samskiptasviði Arion-banka segir í samtali við Mbl.is, sem fyrst greindi frá málinu í morgun, að um yfirsjón hafi verið að ræða af hálfu bankans. Hann hafi brugðist við um leið og það hafi komið í ljós. „Við teljum rétt að endurskoða þetta gjald og verður ekki tekið gjald í talningarvélum bankans næstu daga meðan ákvörðun um upphæð gjalds liggur ekki fyrir,“ segir Bára. Herdís er ánægð með að bankinn hafi fellt niður gjaldið. „Mér finnst þeir menn að meiri að breyta allavega gjaldskránni. Ég ætla ekki að gera lítið úr því en það þarf greinilega ýmislegt til,“ segir Herdís. „Ég sagðist strax ætla með þetta lengra og þetta er það sem við þurfum að gera meira, við Íslendingar. Við eigum ekki bara að kyngja öllu þegjandi. Það bara gengur ekki.“
Mest lesið Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Sjá meira