Svipmynd Markaðarins: Bússi ólst upp í bíóinu hjá Árna Sam Haraldur Guðmundsson skrifar 18. október 2014 10:00 Björn hefur að auki setið í stjórn Eddu útgáfu og Smáís. Vísir/Stefán „
Ég er á harða hlaupum við að koma mér inn í alla þá hluti sem tengjast starfinu enda fyrirtækið með mörg stór verkefni í pípunum,“ segir framleiðandinn Björn Þórir Sigurðsson, sem var í síðustu viku ráðinn til að hafa umsjón með innlendri framleiðslu RVK Studios. Björn, eða Bússi eins og hann er kallaður, hafði áður umsjón með framleiðslu Turner Broadcasting Systems á Latabæjarþáttunum. Hann hefur lengi starfað við dagskrárgerð bæði fyrir sjónvarp og útvarp. „Hins vegar var mitt fyrsta starf fólgið í að skúra gólf og þrífa kaffistofur í rörasteypuverksmiðju sem var í Fífuhvammi í Kópavogi. Ég var þá þrettán ára gamall og vann þar þangað til ég fór að vinna hjá Árna Samúelssyni í Sambíóunum fjórum árum síðar. Þar fékk ég mitt uppeldi í viðskiptum og vinnu og dugnað og hörku í gjöf frá SAM-fjölskyldunni,“ segir Björn. Hann var ráðinn dagskrárgerðarmaður útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar árið 1989 og þaðan lá leiðin á Bylgjuna. Á þeim tíma stundaði hann einnig nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og lauk síðan BA-gráðu í auglýsingahönnun frá American InterContinental University í Los Angeles árið 1994. „Þegar ég kom heim var enn ein kreppan þannig að ég endaði aftur í fjölmiðlunum. Þá hafði Árni Sam keypt FM957 og hann bað mig um að taka við stöðinni og byggja hana upp,“ segir Björn. „Síðan var ég fenginn til að taka við Popptíví þar sem ég notaði viðskiptamódel sem byggði meðal annars á því sem ég gat fært úr útvarpinu yfir í sjónvarpið.“ Björn hefur einnig starfað sem dagskrárstjóri Stöðvar 2, sjónvarpsstjóri Skjás eins og yfirmaður sölu- og markaðssviðs Morgunblaðsins. Hann er giftur Berglindi Viðarsdóttur, birtingafulltrúa hjá Pipar, og þau eiga tvær dætur. Spurður um áhugamál nefnir Björn aðallega vinnuna og hestamennsku. „Undanfarin ár hefur það verið vinnan. En ég er einnig í hestamennsku, datt út úr henni á unglingsárunum en er kominn aftur á fullt, og mér finnst gaman að keyra mótorhjól. Svo má nefna kvikmyndir og afþreyingu enda hefur maður unnið í þeim bransa frá því maður var unglingur,“ segir Björn að lokum.Sigurður G. GuðjónssonSigurður G. Guðjónsson lögmaður „Björn Þóri eða Bússa, eins og hann er jafnan kallaður, hef ég þekkt í hátt í tvo áratugi. Fundum okkar bar saman hjá Íslenska útvarpsfélaginu hf., sem þá átti og rak bróðurpartinn af einkareknum ljósvakamiðlum landsins. Strax þá urðu mér mannkostir hans ljósir. Bússi er ósérhlífinn og harðduglegur, enda skólaður til á sjó. Allt sem hann tekur sér fyrir hendur gerir hann óaðfinnanlega. Í hans huga er ekki til sú hugsun að bíða með það til morguns sem gera má í dag. Slíkir menn eru ekki á hverju strái. Baltasar og félagar geta verið ánægðir með að hafa fengið Bússa í hópinn.“Steinn Kári RagnarssonSteinn Kári Ragnarsson, framkvæmdastjóri Rekkjunnar „Bússi er frábær vinur og heiðarlegasti maður sem ég þekki. Hann er kletturinn sem brýtur á í hafinu, hann stendur alltaf upp úr þar sem hann kemur. Hann hefur einstakt nef hvað varðar að sjá hæfileika í/hjá fólki, framkalla það besta/skemmtilegasta og veit upp á hár hvað fólk vill hverju sinni. Bússi er einstakur stjórnandi og hef ég lært ótrúlega margt af honum. Hann hefur þann einstaka hæfileika að spyrja réttu spurninganna á rétta augnablikinu. Hann gerir gríðarlegar kröfur til sjálfs sín og fer fram á 110% árangur hjá sjálfum sér í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.“
Mest lesið Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Sjá meira