Tónlist

Hljóðfæraleikarar borða sterkan chili-pipar og reyna síðan að spila tónverk

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Claus „Chili“ Pilgaard stjórnar kammersveit Danmerkur og ákvað að gera skemmtilega tilraun með hljóðfæraleikurunum á dögunum en Claus þessi er mikill áhugamaður um chili-pipar.

Hann lét kammersveitarmeðlimina borða sterkasta chili-pipar í heimi og spila síðan verkið Tango Jalousie.

Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi þótti mörgum hljóðfæraleikurunum þetta afar erfitt og margir felldu tár á meðan þeir reyndu að komast í gegnum verkið áfallalaust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.