Tónlist

Frumsýning á Vísi: Nýtt myndband frá Oyama

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin Oyama frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið Siblings. Sigurður Möller Sívertsen leikstýrði myndbandinu sem var framleitt af SALUT.

Um kvikmyndatöku sáu Heimir Gestur Valdimarsson og Sigurður Möller Sívertsen. Klipping var í höndum hins síðarnefnda en sérstakar þakkir frá hljómsveitinni fá Andri Eyjólfsson, Ívar Erik Yeoman og Einar Bragi Rögnvaldsson.

Oyama fagnar fyrstu breiðskífu sinni, Coolboy, með tónleikum á Húrra í kvöld klukkan 21.00. Platan, sem hefur verið í vinnslu síðan um áramótin samanstendur af níu, nýjum lögum frá reykvísku sveimrokksveitinni.

Hljómsveitin hyggst leika plötuna í heild sinni með góðum vinum þeirra til halds og trausts. Þá munu kannski eitthver lög af eldri plötunni, I wanna, einnig berast til eyru gesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.