Tónlist

"Þeir hjá Disney eru búnir að bjóða mér mjög spennandi og stóran samning“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Það er svo margt spennandi að gerast hjá Disney að ég er á fullu núna að reyna að taka upp eins mikið og ég get áður en ég fer aftur út til þeirra í janúar með nýtt „show“,“ segir tónlistarkonan Greta Salóme.

Hér fyrir neðan má sjá nýtt lag sem Greta var að gefa út. Um er að ræða ábreiðu af laginu Halo sem Beyoncé gerði frægt og hljómsveitin Hjaltalín hefur einnig sett í sína útsetningu.

„Útsetningin inniheldur bara raddir og strengi og er upphitun fyrir næstu smáskífu sem kemur út í byrjun janúar,“ segir Greta en lagið tók hún upp hjá Disney í nóvember. Ný plata er svo væntanleg frá Gretu á nýju ári en hún er ekki unnin í samstarfi við Disney.

„En ég mun samnýta efnið af henni og „show“-ið mitt úti auk þess sem þeir selja hana.“

Greta fór til Bandaríkjanna þann 4. júlí á þessu ári og hefur síðan þá verið að skemmta á skemmtiferðaskipi Disney. Hún kom heim til Íslands 14. nóvember en í janúar heldur hún á ný á vit ævintýranna.

„Ég fer til Denver í Colorado 8. janúar til að koma fram sem gestaspilari á jazztónleikum auk þess að koma fram í sjónvarpsþættinum The Everyday Show. Þar á eftir fer ég til Flórída þar sem samningurinn minn byrjar 16. janúar. Þeir hjá Disney eru svo búnir að bjóða mér mjög spennandi og stóran samning fyrir næsta sumar,“ segir Greta sem má ekkert meira segja um samninginn enda ekki búin að skrifa undir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.