Í síðustu viku sögðum við frá því að Scott Stapp, söngvari Creed, væri nánast kominn á götuna sökum fjárhagsvandræða og ætti hann ekki lengur fyrir mat. Í myndbandi sem Stapp sendi aðdáendum sínum sagðist hann vera edrú en fyrrum eiginkona hans heldur öðru fram og segir hann á kafi í neyslu og á mörkum sturlunar, en samkvæmt henni á Scott Stapp það til að senda henni skilaboð þess efnis að skóli sonar þeirra sé skotmark ISIS hryðjuverkarsamtakanna. Söngvarinn lætur hinsvegar engan bilbug á sér finna og hefur nú hafið hópfjáröflun þar sem hann biðlar til aðdáenda sinna að safna £300.000, eða um 60 milljónum íslenskra króna, til að taka upp nýja sólóplötu. Þá hefur söngvarinn einnig lýst því yfir að hann hafi áhuga á að skrifa skáldsögu. Íslenskir Creed aðdáendur geta tekið þátt í söfnunninni hér.
Það verður boðið upp á sérstakan jólaþátt af Straumi í kvöld hér á X977. En í þætti kvöldsins verður lögð áhersla á ný eða nýleg jólalög frá The Flaming Lips, Wild Nothing, !!!, Los Campesinos og mörgum öðrum en Straumur er auðvitað á dagskrá klukkan 23 í kvöld.