Tónlist

Miðasala hafin á Airwaves

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Frá Airwaves-hátíðinni í ár.
Frá Airwaves-hátíðinni í ár. vísir/andri marinó
Miðasala er hafin á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves 2015 á heimasíðu hátíðarinnar. Sérstakt forsöluverð er í boði fyrir þá fyrstu sem kaupa sér miða.

Hátíðin verður haldin dagana 4 til 8. nóvember á næsta ári. Undirbúningur er þegar hafinn og verða fyrstu listamennirnir kynntir snemma á nýja árinu.

Í ár var uppselt á hátíðina og hefur fjöldi erlendra gesta sem heimsóttu Reykjavík á Iceland Airwaves aldrei verið meiri.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.