Íslandsbanki hagnaðist um 23,1 milljarð króna í fyrra Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. febrúar 2014 09:15 Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka. Fréttablaðið/Anton
Íslandsbanki hagnaðist um 23,1 milljarð króna á árinu 2013 samkvæmt uppgjöri sem birt var í morgun. Hagnaður á lokafjórðungi ársins var 7,7 milljarðar. Afkoman er rétt undir afkomu fyrra árs, en árið 2012 nam hagnaður bankans 23,4 milljörðum. „Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 14,7 prósent á árinu samanborið við 17,2 prósent árið 2012,“ segir í tilkynningunni. Minni arðsemi er fyrst og fremst sögð skýrast af hækkun eigin fjár sem nemi 14,4 prósentum milli ára. „Skattar og gjöld greidd til ríkis og stofnana námu samtals 12,4 milljörðum króna á árinu, samanborið við 9,2 milljarða króna 2012, sem er hækkun um 34 prósent á milli ára.“ Þá kemur fram í tilkynningunni að frá stofnun bankans hafi um 35.500 einstaklingar og um 4.100 fyrirtæki fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nemi um 548 millljörðum króna. Endurskipulagning er einnig sögð ganga vel, hlutfall lána í endurskipulagningu hafi verið átta prósent í lok árs, en var ári fyrr 14 prósent. Þá hafi hlutfall lána í meira en 90 daga vanskilum verið fjögur prósent, miðað við átta prósent í desember 2012. Heildareignir bankans jukust um 5,2 prósent á árinu 2013, fóru úr 823 milljörðum króna í 866 milljarða. Í tilkynningu bankans er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóri Íslandsbanka, að árið 2013 hafi verið gott ár hjá bankanum. „Og má segja að við höfum uppskorið árangur þeirra miklu og góðu vinnu sem starfsmenn á öllum sviðum bankans hafa lagt af mörkum á undanförnum árum.,“ er eftir henni haft. Auknar álögur á bankann dragi hins vegar úr hagnaði. Birna bendir á að greiddur hafi verið bankaskattur upp á 2,3 milljarða króna á árinu. „Við sjáum aukin umsvif í atvinnulífinu en ný útlán á árinu 2013 námu um eitthundrað milljörðum króna og allt bendir til að fyrirtæki og einstaklingar hafi meira svigrúm til fjárfestinga en áður,“ segir Birna jafnframt í tilkynningu bankans. „Við höfum lagt áherslu á aukningu þóknanatekna sem skilaði sér í 10 prósenta aukningu þóknanatekna á milli ára en þær námu 10,4 milljörðum samanborið við 9,5 milljarða árið 2012.“ Þá hafi Íslandsbanki verið fremstur í miðlun hlutabréfa á árinu og sé leiðandi í skráningu hlutafélaga á markað. „Góð framvinda hefur verið í hagræðingarverkefnum innan bankans en hins vegar litast uppgjörið af einskiptisliðum, bæði í tekjum og kostnaði.“ Birna segir mikla áherslu hafa verið lagða á að fjölga stoðum í fjármögnun bankans með góðum árangri. „Aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum gerir okkur betur í stakk búin til að styðja við viðskiptavini okkar sem stunda alþjóðleg viðskipti og þarfnast fjármögnunar í erlendri mynt.“
Mest lesið Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira