Átti ekki von á þessum yfirburðum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. júní 2014 06:00 Sveinbjörg fór á kostum í Kópavogi um helgina. fréttablaðið/daníel
Ísland eignaðist tvo Norðurlandameistara á NM í fjölþrautum unglinga sem fram fór í Kópavogi um nýliðna helgi. FH-ingurinn Sveinbjörg Zophoníasdóttir vann í sjöþraut, flokki yngri en 23 ára, og hlaut alls 5.723 stig sem er bæting um 244 stig. Blikinn Ingi Rúnar Kristinsson varð yfirburðameistari í tugþraut í flokki yngri en 23 ára með 7.156 stig, en besti árangur Inga fram til þessa var 6.955 stig. Árangur Inga Rúnars er þriðji besti árangur í tugþraut í flokki 22 ára og yngri frá upphafi. Aðeins Einar Daði Lárusson og Örn Clausen eiga betri árangur í þessum aldursflokki. Árangur Sveinbjargar er annar besti árangur í sjöþraut frá upphafi og 155 stigum frá Íslandsmeti Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur frá 2009. Með sigri sínum sínum varði hún titil sinn frá þessu móti í fyrra. Þá hlaut hún 5.212 stigYfirburðirnir komu á óvart „Þetta voru talsverðir yfirburðir hjá mér og nokkuð öruggt eftir þrjár til fjórar greinar. Ég átti ekki von á þessum yfirburðum enda átti ein stelpan skráðan betri árangur en ég,“ segir Sveinbjörg sem var eðlilega hæstánægð með þrautina sína. Hún vann þrjár greinar af sjö og varð önnur í öðrum þremur og bætti sinn árangur í sex af sjö greinum keppninnar. „Ég átti ekki von á svona góðum árangri svona snemma á tímabilinu hjá mér. Ég er samt búin að æfa rosalega vel og búin að leggja vel inn fyrir þessum árangri. Þetta kom mér ekki þannig séð mikið á óvart en gekk engu að síður vonum framar. Þetta var algjör draumaþraut hjá mér.“ Það var aðeins í hástökki sem hún bætti ekki sinn besta árangur í þraut en það dugði henni samt til sigurs í greininni. „Ég var ánægðust með grindahlaupið og kúluvarpið hjá mér í þrautinni. Ég var óánægðust með 800 metra hlaupið hjá mér og hugsaði þegar ég kom heim að ég hefði nú alveg getað hlaupið hraðar. Maður getur alltaf fundið eitthvað að þó svo það hafi gengið fáranlega vel hjá mér,“ segir Sveinbjörg og hlær við. Staðan var reyndar þannig fyrir 800 metra hlaupið að Sveinbjörg hefði nánast getað hlaupið aftur á bak og samt unnið þrautina. Slíkir voru yfirburðirnir hjá henni.fréttablaðið/daníelLyftingarnar breyttu miklu Þetta var fyrsta mót Sveinbjargar á keppnistímabilinu og því er árangurinn vonum framar eins og hún segir. Hún þakkar þennan árangur mikilli vinnu. „Ég hef lyft meira núna en áður og er sterkari. Það er aðalbreytingin hjá mér. Ólympísku lyftingarnar komu sterkar inn hjá mér og svo slapp ég alveg við meiðsli sem hefur einnig mikið að segja. Við fórum síðan í æfingaferð til Tenerife þar sem við tókum tuttugu æfingar á tíu dögum. Það er því búið að vinna vel fyrir þessum árangri. Svo hefur reynslan líka sitt að segja. Ég er búin að upplifa góðar og slæmar þrautir og það hlaut að koma að draumaþrautinni. Reynslan skilar sér á endanum,“ segir hin 22 ára gamla Sveinbjörg.Hugsar sem minnst um metið Eins og áður segir er Sveinbjörg nú aðeins 155 stigum frá Íslandsmeti Helgu Margrétar í sjöþrautinni. „Ég reyni að tala sem minnst um það,“ segir Sveinbjörg og hlær. „Ég vil ekki setja pressu á sjálfa mig. Auðvitað horfi ég til þessa mets og veit hvað ég get. Ég er samt ekkert að flýta mér enda aðeins 22 ára. Það kemur þegar það kemur að ég slái þetta met.“ Það er ýmislegt á döfinni hjá Sveinbjörg í sumar og þar á meðal landsliðsverkefni. Stóra mótið hennar er aftur á móti Evrópubikarinn á Madeira sem fer fram eftir mánuð. „Ég tek því rólega út þessa viku og svo hefst undirbúningurinn fyrir Evrópubikarinn. Ég vil ekki gefa neitt út um nein markmið á því móti. Ég ætla að fara út og markmiðið er fyrst og fremst að halda áfram að bæta minn besta árangur.“
Innlendar Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Erna Sóley Norðurlandameistari og Bryndís eltir Ísold á HM Van Dijk sendi Slot kveðju Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Dagskráin í dag: Tekist á í Tókýó og Besta deildin Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Mikil spenna fyrir lokahringinn „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag „Okkar besti hálfleikur á tímabilinu“ Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Dagur Árni aftur heim í KA Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Sjá meira