Quarashi mætir í Herjólfsdalinn 17. júlí 2014 00:01 Þrír meðlimir Quarashi sem spila á Þjóðhátíð: Steinar Fjeldsted, Sölvi Blöndal og og Egill MYND/DANÍEL
Hljómsveitin goðsagnakennda Quarashi spilar á Þjóðhátíð í ár en sveitin hefur aldrei áður haldið tónleika í Vestmannaeyjum. Quarashi verður aðalatriðið á laugardagskvöldinu þar sem hún mun spila öll sín þekktustu lög á stóra sviðinu í Herjólfsdal. Sveitin starfaði á tímabilinu 1996-2005 og náði miklum vinsældum hérlendis auk þess sem hún vakti nokkra athygli erlendis, þá helst í Japan og Bandaríkjunum. Sölvi Blöndal, forsprakki hljómsveitarinnar, lofar frábærum tónleikum og mikilli upplifun fyrir þjóðhátíðargesti enda sé tónlist Quarashi stór og mikil og þurfi marga áhorfendur til að njóta sín. „Þetta verða einu tónleikar okkar í sumar og kannski þeir síðustu á ferlinum, hver veit. Ég hef aldrei komið til Vestmannaeyja og hlakka mikið til að spila í dalnum. Í sjálfu sér veit ég ekkert hvað ég er að fara út í en hef bara heyrt góða hluti um Þjóðhátíð og heimamenn.“ Allir fyrrverandi meginliðsmenn sveitarinnar verða með í Eyjum en auk Sölva eru það Höskuldur Ólafsson, Steinar Fjeldsted, Ómar „Swarez“ Hauksson og Egill „Tiny“ Thorarensen. Flestir þjóðhátíðargestir eru ungt fólk sem var á leikskólaaldri þegar fyrsta plata sveitarinnar kom út. Sölvi segir það vera skemmtilega upplifun að spila fyrir nýja aldurshópa sem þó þekki tónlist þeirra vel. „Ég uppgötvaði það fyrst fyrir alvöru á Bestu hátíðinni árið 2011 hvað við vorum að spila fyrir ungt fólk. Ég labbaði aðeins út fyrir og leit yfir áhorfendurna. Þetta voru allt um 16-20 ára krakkar sem voru varla fædd þegar fyrsta plata okkar kom út. Það var alveg frábær sjón.“ Quarashi gaf út nýtt lag í vor, Rock On, sem hefur fengið mikla spilun en tíu ár eru síðan sveitin sendi síðast frá sér nýtt lag. Sölvi segir hljómsveitina stefna á að senda annað lag frá sér í lok ágúst eða snemma í september. „Þótt Quarashi muni kannski aldrei spila framar er þessi frumþörf alltaf til staðar, að semja tónlist. Hún er jú rótin að þessu öllu saman. Quarashi hefur alla tíð verið mér hugstæð. Ef ég er í stuði til að búa til tónlist geri ég það. Það þýðir þó ekki að ég geri það alla tíð. Ég er í miklu stuði þessa dagana en við verðum bara að sjá til hvernig málin þróast næstu árin.“ Ferill sveitarinnar var viðburðaríkur og margt stendur upp úr í minningunni að sögn Sölva. „Við fórum á einu ári úr því að spila fyrir tvo unglinga í félagsmiðstöð hér heima í að hita upp fyrir Eminem í Bandaríkjunum. Það sem stendur upp úr er að hafa fengið tækifæri til að taka þetta nánast alla leið. Við trúðum á okkur allan tíman og það er ótrúlega gaman að horfa til baka og rifja upp þetta tímabil. Við vorum til dæmis fyrsta íslenska hljómsveitin sem fyllti Laugardalshöll og einnig sú fyrsta sem gaf út lag á MP3-formi sem var mikil nýjung á þeim tíma. Auk þess hituðum við upp fyrir Prodigy hér heima þannig að þetta var ferðalag sem ég get hiklaust mælt með.“
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira