Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Kviss 30. september 2026 10:11 Björn Bragi ætlar að finna klárasta fyrirtæki landsins á fyrsta Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss. Enn er hægt að skrá sig til leiks en takmarkaður fjöldi fyrirtækja kemst að. Uppistandarinn og sjónvarpsmaðurinn Björn Bragi er farinn af stað með Íslandsmót fyrirtækja í Kviss. Fjölmargir vinnustaðir hafa þegar skráð sig til þátttöku. „
Undanfarin ár hef ég verið mikið bókaður í fyrirtæki til að halda Kviss fyrir starfsfólk. Það er alltaf brjáluð stemning og frábært hópefli,“ segir Björn Bragi, sem stýrir hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum Kviss á Sýn. „Mig langaði til þess að taka þetta upp á næsta stig í vetur og búa til alvöru Íslandsmót á milli fyrirtækja,“ segir hann. Klippa: Íslandsmót fyrirtækja í KVISS „Þetta virkar í raun bara eins og áður. Fyrirtæki bóka mig í að halda Kviss og ég mæti á staðinn og stýri keppninni. Nema núna mun sigurliðið á hverjum vinnustað halda áfram og tryggja sér sæti á veglegu úrslitakvöldi,“ segir Björn Bragi. Úrslitakvöldið verður haldið í Sykursalnum í desember. Þar keppa öll sigurliðin úr fyrirtækjunum um glæsilega vinninga og titilinn Íslandsmeistari fyrirtækja í Kviss. Sjónvarpsþættirnir Kviss njóta mikilla vinsælda. Herra Hnetusmjör og Huginn stóðu uppi sem sigurvegarar í fyrra fyrir hönd Reykjavík MMA. Alvöru Kviss-upplifun fyrir fyrirtæki Kviss er spurningaþáttur þar sem þekktir Íslendingar keppa fyrir hönd íþróttafélaganna sinna. Þátturinn nýtur ótrúlegra vinsælda og Björn Bragi segist nýta ýmsa þekkta liði úr þættinum í kviss-keppnum fyrir fyrirtæki. „Ég er alltaf með myndagátur, sameiginlegt-spurningar, tengingu, frægar línur og þess háttar. Ég reyni að búa til alvöru Kviss-upplifun,“ segir Björn Bragi. Fjórir eru saman í hverju liði og liðin skrifa svör við spurningunum á blöð. „Með þessum hætti er hægt að gera þetta fyrir nokkurn veginn hvaða fjölda sem er,“ segir Björn Bragi. „Ég er bæði að mæta á fámenna og fjölmenna vinnustaði. Í stærri fyrirtækjum er hópunum stundum skipt niður eftir sviðum og þá eru jafnvel haldin tvö eða fleiri kviss.“ Frábærar viðtökur Fyrirtæki skrá sig til þátttöku með því að senda póst á netfangið bokanir@bjornbragi.is. Þar fá þau allar nánari upplýsingar og verð. Björn Bragi segir viðtökurnar hafa verið svakalegar. „Ég byrjaði að kynna þetta fyrir tveimur vikum og við höfum fengið ógrynni af fyrirspurnum, sem er alveg frábært því við viljum hafa sterkt og flott úrslitakvöld,“ segir hann. Takmarkaður fjöldi fyrirtækja kemst að og þegar er farið að fyllast hratt í mótið. Björn Bragi segir að auk glæsilegra vinninga verði að sjálfsögðu veglegur bikar fyrir sigurliðið. „Og náttúrulega það sem mestu máli skiptir, að geta kallað sig klárasta fyrirtæki á Íslandi,“ segir hann og hlær.
Kviss Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Sjá meira