Konungur bandarísks gríns Lilja Katrín Gunnarsdótti skrifar 24. júlí 2014 11:30 Will á farsælan grínferil að baki.
Spéfuglinn Will Ferrell verður heiðraður á bandarísku kvikmyndahátíðinni Deauville í Frakklandi sem haldin verður frá 5. til 15. september. Hátíðarhaldarinn Bruno Barde segir Will vera konung bandarísks gríns. „Bandaríska kvikmyndahátíðin Deauville er, eins og nafnið gefur til kynna, hátíð fyrir alls kyns kvikmyndir, af hverju tagi og því er ekkert utan seilingar,“ segir Bruno. Hann gengur svo langt að líkja Will við bandarísku gríngoðsögnina Jerry Lewis og segir þá báða alltaf hafa gengið of langt í gríni og því verið unun fyrir áhorfendur að fylgjast með. Will sló fyrst í gegn í grínþættinum Saturday Night Live um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Síðan þá hefur hann leikið í myndum á borð við Old School, Anchorman: The Legend of Ron Burgundy, Talladega Nights, Stranger than Fiction, The Other Guys og Anchorman2: The Legend Continues. Þá hefur hann tvisvar hlotið American Comedy-verðlaunin, tvisvar verið tilnefndur til Golden Globe-verðlaunanna og tvisvar til Emmy-verðlaunanna. Hann er talinn tilheyra svokölluðum Frat Pack sem samanstendur af grínleikurum sem slógu í gegn seint á tíunda áratug síðustu aldar og snemma á 21. öldinni.
Bíó og sjónvarp Golden Globes Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Hvað veistu um… skák? Lífið Fleiri fréttir Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Sjá meira