Greiddu lánardrottnum 1.200 milljarða króna Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. ágúst 2014 22:35 Mikil vinna Fjöldi sérfræðinga kom að skuldauppgjörinu. Fréttablaðið/vilhelm.
Heildaruppgjöri Björgólfs Thors Björgólfssonar og fjárfestingarfélags hans, Novators, við innlenda og erlenda lánardrottna er nú lokið. Heildarfjárhæð greidd til lánardrottna er um 1.200 milljarðar króna, þar af hafa íslenskir bankar og dótturfélög þeirra nú alls fengið greidda rúma 100 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Björgólfur sendi fjölmiðlum í gær. Allar greiðslur voru í erlendri mynt. Björgólfur segist hafa haft um 100 manna her lögfræðinga, endurskoðenda og annarra sérfræðinga til að vinna að skuldasamkomulaginu. Hann hafi lagt allar sínar eigur undir. „Ég var alla tíð ákveðinn í að ganga frá uppgjörinu með sóma. Til að svo mætti verða þurfti mikla og þrotlausa vinnu til að hámarka virði þeirra eigna sem lágu til grundvallar uppgjörinu. Þegar tilkynnt var um uppgjör mitt í júlí 2010 kom fram að skuldir myndu verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eftir,“ segir Björgólfur í tilkynningunni. Í tilkynningunni segir jafnframt að þegar tilkynnt var um samkomulag við alla lánardrottna í júlí 2010 hafi verið reiknað með að um fimm til sex ár tæki að vinna að sölu eigna og klára uppgjör. Ýmsar persónulegar eignir Björgólfs Thors hafi gengið til lánardrottna um leið og gengið var frá samkomulaginu, þar á meðal húseign í Reykjavík og sumarhús við Þingvelli, sem og einkaþota og snekkja.
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira