Tónlist

Fanga hvirfilvind íslenskrar tónlistar

Baldvin Þormóðsson skrifar
Félagarnir Mark og Chris vilja koma íslenskum tónlistarmönnum saman að spjalla um senuna.
Félagarnir Mark og Chris vilja koma íslenskum tónlistarmönnum saman að spjalla um senuna.
„Við vildum bara hjálpa íslensku tónlistarsenunni að koma sér á framfæri á heimsvísu,“ segir Chris Sea en hann er blaðamaður á ROK Music, nýju nettímariti sem sérhæfir sig í að kynna íslenskt tónlistarfólk fyrir heiminum.

Ritstjóri tímaritsins Benjamin Mark Stacey lærði grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands og sést það greinilega á stílhreinni hönnun síðunnar.

„Við erum að færast í átt að meiri podcast-pælingu,“ segir Benjamin. „Við viljum koma tónlistarmönnum saman og taka upp samræður þeirra um íslensku tónlistarsenuna og kynna þá í leiðinni,“ segir ritstjórinn en nýja podcastið ber nafnið Tónmatur og hefur þegar eitt slíkt verið sett á síðuna Rokmusic.com.

„Hugmyndin að síðunni kom þegar erlendir blaðamenn voru að taka viðtal við mig í kringum Airwaves. Þá var undantekningarlaust spurt af hverju íslenska tónlistarsenan er svo virk,“ segir Benjamin.

„Hugmyndin að tímaritinu er að reyna að fanga hvirfilvind íslenskrar tónlistar í rauntíma og segja heiminum frá því sem er að gerast hérna.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.