Ísland aldrei tapað í Koparkassanum í London Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2014 07:00 Martin Hermannsson var frábær í fyrri leiknum. vísir/Vilhelm
Ísland er aðeins 40 mínútum frá því að komast inn á Evrópumótið í körfubolta. Sigur á Bretum í Koparkassanum í London á miðvikudagskvöldið gæti skrifað annað bindi í sögu íslenska körfuboltans. Eftir þrettán stiga sigur á Bretum í Höllinni nægir íslensku strákunum sigur á breska liðinu til þess að tryggja sér annað sætið í riðlinum sem gefur nánast örugglega sæti í úrslitakeppni EM. Koparkassinn var byggður fyrir Ólympíuleikana í London 2012 og þar fór fram riðlakeppni handboltans á sumarleikunum fyrir tveimur árum. Íslenska handboltalandsliðið er eini fulltrúi Íslands í höllinni fyrir þennan leik annað kvöld og það er ekki mikið hægt að kvarta yfir genginu til þessa. Íslenska handboltalandsliðið vann alla fimm leikina í Koparkassanum í riðlakeppni ÓL í London, þar á meðal sigur á bæði Frökkum og Svíum sem enduðu síðan á því að spila um gullið á leikunum. Íslenska liðið vann Argentínu og Túnis í fyrstu tveimur leikjum sínum og síðasti leikur íslensks landsliðs í húsinu var síðan sautján marka sigur á breska landsliðinu, 41–24. Tveimur dögum eftir sigurinn á Bretum var komið að átta liða úrslitunum en þá var ekki lengur spilað í Koparkassanum heldur í Körfuboltahöllinni sem er stærra hús. Íslenska liðið tapaði fyrir Ungverjum í framlengdum leik í fyrsta leik sínum í Körfuboltahöllinni. Í raun hefur ekki gengið alltof vel hjá karlalandsliðunum okkar í London fyrir utan þessa leiki í Koparkassanum og því til stuðnings má nefna tap fótboltalandsliðsins fyrir Trínidad og Tóbagó á Loftus Road í febrúar 2006 eða tvö töp í hinum leikjum fótboltalandsliðsins í höfuðborg Englands. En þessi leikur fer sem betur fer fram í Koparkassanum og þar Ísland á fimm leikja sigurgöngu.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira