Milljarða hagnaður skagfirska risans Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. september 2014 10:00 Kaupfélag Skagfirðinga hefur aðsetur á Sauðárkróki. Umsvifin eru mikil, bæði á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs.
Kaupfélag Skagfirðinga hagnaðist um 1.700 milljónir króna eftir skatta á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi sem birtur var fyrr í mánuðinum. Það er þó töluvert minni hagnaður en árið á undan þegar hagnaðurinn nam næstum 2.300 milljónum króna. Kaupfélagið er fyrirferðarmikið í íslensku atvinnulífi. Eignir nema 32,2 milljörðum og eigið fé nemur 22,2 milljörðum. Þau fyrirtæki sem Kaupfélagið á hlut í eru staðsett víðs vegar um landið. Kaupfélag Skagfirðinga hefur verið nokkuð til umræðu í vikunni vegna 10 prósenta hlutar sem félagið á í Mjólkursamsölunni. Að auki á Kaupfélagið Vogabæ ehf., sem er móðurfélag Mjólku. Það eru einmitt þessi eignartengsl Kaupfélagsins við Mjólkursamsöluna og Mjólku sem eru aðdragandinn að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, þar sem Mjólkursamsalan var sektuð um 370 milljónir króna. Í þeirri ákvörðun segir að samþjöppun á markaðnum og búvörulög leyfi Mjólkursamsölunni og Kaupfélaginu mjög nána viðskiptalega samvinnu. Sú ákvörðun Mjólkursamsölunnar að selja dótturfélagi Kaupfélagsins hrámjólk á betri kjörum en Mjólkurbúinu Kú hafi hins vegar verið ólögleg, eins og rakið hefur verið í fjölmiðlum. Kaupfélag Skagfirðinga rekur meðal annars mjólkurafurðastöð, kjötafurðastöð, Kjarnann þjónustuverkstæði, dagvöru- og ferðamannaverslun í Skagafirði og verslunina Eyri, eftir því sem fram kemur á vefsíðu fyrirtækisins. Verðmætasta eign félagsins er 100 prósenta hlutur í útgerðarfélaginu FISK-Seafood á Sauðárkróki. Það er fimmta stærsta útgerðarfélag á landinu, en bókfært virði þeirrar félagsins nemur tæplega 16,5 milljörðum króna. Hagnaður þess nam 1,3 milljörðum króna á síðasta ári. Útgerðarfélögin FISK-Seafood og Samherji keyptu saman 70 prósenta hlut í Olíufélagi Íslands árið 2012 og á FISK helming þess hlutar. Þá á Kaupfélagið hlut í Fóðurblöndunni ehf. í Reykjavík sem nemur tæpum 970 milljónum króna. Aðrar eignir eru fjölmargar en minni.
Mest lesið Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Sjá meira