Óskapnaður, en líka flottheit Jónas Sen skrifar 11. október 2014 11:00 Hafdís Bjarnadóttir. „Tónleikarnir byrjuðu ekki vel, en tvö tónverk eftir Hafdísi Bjarnadóttur björguðu þeim.“ Vísir/GVA
Tónlist: Sláturtíð í Hafnarhúsi S.L.Á.T.U.R. Upphafstónleikar Sláturtíðar í Listasafni Reykjavíkur fimmtudaginn 9. október. Hvað er að vera listrænt ágengur? Í tónlistarlífinu hefur um nokkurt skeið starfað hópur tónlistarfólks sem kallar sig SLÁTUR. Nafnið stendur fyrir Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík. Væntanlega þýðir það að tónsmiðirnir eru ágengir, þ.e. djarfir. Þeir dirfast að bera á torg verk sem falla seint í kramið hjá þorra almennings. Það er frábært að til sé slíkur hópur. Án tilrauna þróast tónlistarlífið ekki neitt. En tilraunir heppnast auðvitað ekki alltaf. SLÁTUR skipuleggur litla hátíð á hverju hausti þar sem flutt eru nýstárleg tónverk. Að þessu sinni er hátíðin haldin í Listasafni Reykjavíkur. Upphafstónleikarnir voru á fimmtudagskvöldið og var fyrst sýnd stutt kvikmynd með tónlist undir. Myndin hét Travelling Light og var eftir Kristine Tjögersen, en hún samdi einnig tónlistina. Það var þunnur þrettándi. Kvikmyndin var tekin út um glugga á lest sem var lengst af að fara um göng. Ekki ber mikið fyrir augu á slíkum stundum, ljós fara fram hjá með reglulegu millibili, skilti, o.s.frv. Þetta var túlkað með tónum á stangli, sem sköpuðu einhæfa, langdregna hljóðmynd. Ansi var það leiðinlegt. Á tónleikum SLÁTURS hefur svona nokkuð verið áberandi í gegnum tíðina. Maður sér einhvers konar mynstur á vegg, venjulega einfalda tölvugrafík, og hópur hljóðfæraleikara reynir að breyta henni í tóna. Það er sjaldan áhugavert. Eiginlega er þetta orðið eins og gamall brandari sem er löngu hættur að vera fyndinn. Ekki er hægt að kalla þetta tilraun lengur, því hún hefur svo oft verið framkvæmd. Það er frekar að þetta sé orðið að þráhyggju. Verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson var þessu marki brennt. Þríeyki frá Noregi, Toen fil og Klafferi, sat við borð sem á var fartölva. Þremenningarnir horfðu einbeittir á skjáinn og spiluðu eftir fyrirmælum sem þar greinilega birtust. Nú sáu tónleikagestir ekki það sem var í tölvunni, ólíkt því sem gjarnan hefur tíðkast á fyrri tónleikum, þegar tölvuskjánum hefur verið brugðið upp á vegg. En það sem hér heyrðist var ósköp svipað og maður hefur áður upplifað. Engin spennandi framvinda var merkjanleg, engin áhugaverð áferð, engar andstæður, engir litir. Tónlistin var fyrst og fremst óskapnaður sem risti ekki djúpt. Mun betri voru tvær tónsmíðar eftir Hafdísi Bjarnadóttur, Sólheimajökull og Dettifoss. Þar blandaðist hljóðfæraleikur Norðmannanna við upptökur frá göngutúr um jökulinn og við fossinn. Þetta var skemmtilegt. Hljóðfæraleikurinn var fíngerður og vandaður, tónavefurinn fagurlega ofinn. Hann féll furðuvel að grófum hljóðunum úr hátölurunum. Þetta tvennt, viðkvæmur hljóðfæraleikurinn og groddaleg upptakan, mynduðu flotta dramatíska árekstra sem voru krassandi. Þarna var tilraun sem auðheyrilega virkaði. Niðurstaða: Tónleikarnir byrjuðu ekki vel, en tvö tónverk eftir Hafdísi Bjarnadóttur björguðu þeim.
Gagnrýni Mest lesið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Lífið Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bíó og sjónvarp Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma Lífið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Fleiri fréttir Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Úr öskunni í eldinn Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira