Tónlist

Gefa út viðar-smáskífu sem verndargrip

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Kira Kira þakkar Skógræktarfélagi Reykjavíkur sérstaklega fyrir.
Kira Kira þakkar Skógræktarfélagi Reykjavíkur sérstaklega fyrir. Fréttablaðið/GVA
„Þetta er viðarskífa sem þú getur haft um hálsinn eða hengt upp í gluggann eða utan um baksýnisspegilinn í bílnum, eins konar verndargripur. Síðan er tónlistin á kóða sem er prentaður í lokið á kassanum utan um verndargripinn,“ segir tónlistarkonan Kristín Björk Kristjánsdóttir, einnig þekkt sem Kira Kira.

Hún hefur nú gefið út óvenjulega smáskífu með bandaríska raftónlistarmanninum Eskmo sem hægt er að nálgast í Mengi og í gegnum Kirakira.bandcamp.com.

Skífan Hægt er að hafa skífuna um hálsinn.
„Okkur langaði að gefa eitthvað út sem heiðraði alla þá góðu strauma sem við settum í verkin okkar tvö, Call it Mystery eftir mig og Perspective eftir Eskmo. Mér finnst smáskífan mjög heiðarlegt og flott útgáfuformat, það setur gott „spott“ ljós á tónlistina og býður líka upp á útgáfuryþma sem er mjög heilbrigður. Það er eitthvað fallegt við að hella öllu sem í manni býr í eitt lag og deila því svo tafarlaust með fólki,“ segir Kristín en skífurnar eru skornar úr lerkitré úr Heiðmörk. Hún muldi svo þrjár mismunandi týpur af kristöllum í útskurðinn en hún þakkar Skógræktarfélagi Reykjavíkur sérstaklega fyrir aðstoðina.

Eskmo og Kira Kira spiluðu saman á Airwaves í ár og tóku upp plötu í hljóðveri Alex Somers og Jónsa í Sigur Rós. „Við lokuðum okkur af í 15 tíma í hljóðveri þeirra í Þingholtunum en svo erum við líka með eitthvað af efni sem við tókum upp í Los Angeles í fyrrasumar og í síberískum sumarbústað í Hvalfirði,“ segir Kristín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.