Tónlist

Jamie xx treður upp á Sónar

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Jamie xx er nýjasta viðbótin við Sónar hátíðina.
Jamie xx er nýjasta viðbótin við Sónar hátíðina. Vísir/Getty
Jamie xx úr hljómsveitinni The xx mun troða upp á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík í Hörpu í febrúar.

Hann ætti að vera kunnur Íslendingum en The xx tóku upp plötu hér á landi í ár. Einnig kemur fram teknóplötusnúðurinn Jimmy Edgar frá Detroit og kanadíski taktsmiðurinn Ryan Hemsworth, eins og Fréttablaðið sagði frá í seinustu viku.

Þeir íslensku tónlistarmenn sem tilkynntir verða í dag eru Jón Ólafsson & Futuregrapher sem leiða saman hesta sína, Emmsjé Gauti, Páll Ivan frá Eiðum, Kött Grá Pjé, AMFJ og Bjarki.

Sónar Reykjavík verður haldin á fimm sviðum í Hörpunni í þrjá daga, 12.-14. febrúar. Tónlistarmenn og hljómsveitir sem hafa þegar verið tilkynnt eru Skrillex, Yung Lean, SBTRKT, Kindness, Todd Terje, Nina Kraviz og fleiri.

Sónar var upprunalega haldin í Barcelona en hátíðin hefur stækkað í gegnum árin og verið haldin víðs vegar um heiminn. Hátíðin verður haldin á fimm sviðum í Hörpu 12.-14. febrúar.


Tengdar fréttir

Skrillex á Sónar Reykjavík

Skrillex mun koma fram á Sónar Reykjavík 2015 en þetta kemur fram í tilkynningu frá Sónar Reykjavik. Fram kemur í tilkynningunni að Skrillex hafi umbreytt danstónlistarheiminum og orðið einn af allra vinsælustu tónlistarmönnum veraldar.

TV on the Radio bætist við Sónar

Fjórtán flytjendur úr ýmsum áttum hafa bæst við Sónar, sem verður haldin á næsta ári, þar meðal Elliphant og Daniel Miller.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.