Benedikt um Jón Arnór: Fer í súpermannbúninginn í landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2015 08:30 Benedikt Guðmundsson og Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson var valinn íþróttamaður ársins 2014 af Samtökum íþróttafréttamanna. Fréttablaðið fékk þrjá KR-þjálfara sem þekkja kappann vel til þess að segja sína skoðun á þessum frábæra leikmanni. Benedikt Guðmundsson þjálfaði Jón Arnór þegar hann varð Íslandsmeistari síðast árið 2009 en Benedikt þjálfaði líka Jón upp alla yngri flokkana hjá KR og hafði mikil áhrif á það að hann valdi körfuboltann fram yfir fótboltann á sínum tíma. „Jón er einn af þessum leikmönnum sem geta verið frábærir í leikjum án þess að vera með stigahæstu leikmönnum vallarins. Hann gerir svo margt sem hjálpar liðinu að vinna," segir Benedikt. „Sigurviljinn sem hann smitar til samherja er einstakur hvort sem það er á æfingu eða í leik. Hann er heimsklassa varnarmaður en það gleymist oft að helmingurinn af leiknum fer fram á þeim vallarhelmingi," segir Benedikt. „Leiðtogahæfileikar hans hafa aukist með aldri og reynslu. Á Spáni hefur hann tekið að sér að vera sá leikmaður sem límir liðið saman. Þess vegna segir tölfræði hans aðeins hálfa söguna þegar frammistaða hans er metin," segir Benedikt. „Leikmenn eins og hann eru ómetanlegir og er sigurhlutfall liðsins besta tölfræðin yfir frammistöðu Jóns. Þegar í landsliðið er komið fer hann síðan í súpermannbúninginn og þá fær fólk að sjá betur alla þá hluti sem hann er fær um að framkvæma," segir Benedikt að lokum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira