Heimsfrægar forsíðustúlkur ASOS 30. mars 2015 13:30 Taylor Swift er meðal þeirra stórstjarna sem hafa prýtt forsíðu tímarits verslunarsíðunnar Asos. Nordicphotos/Getty
Jennifer Lawrence, Blake Lively, Claire Danes, Taylor Swift, Lady Gaga, Lena Dunham. Allar eiga þessar heimsfrægu konur það sameiginlegt að hafa birst á forsíðu Asos Magazine.Asos, sem er bresk fatasíða, segir markmið fyrirtækisins frá upphafi hafa verið að einblína á konur á uppleið þegar þau velja fyrirsætur. Florence Welch og Lady Gaga voru meðal þeirra sem sátu fyrir í myndaþætti fyrir blaðið þegar þær voru að stíga sín fyrstu skref í sviðsljósinu, einnig var Glee stjarnan Lea Michele á forsíðu blaðsins þegar Glee var að hefja göngu sína.Jennifer LawrenceNordicphotos/GettyÞað var síðan mikið stökk fyrir aðstandendur Asos þegar Jennifer Lawrence birtist á forsíðu blaðsins. Það var árið 2011, sama ár og hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna í fyrsta skiptið fyrir myndina „Winter‘s Bone.“ Sú verðlaun gerðu það að verkum að hún fór úr því að vera lítt þekkt í að verða heimsfræg. Einnig birtist Taylor Swift á forsíðu blaðsins árið 2014, nokkrum vikum áður en hún gaf út plötuna „1989“. Blaðið er gefið út tíu sinnum á ári af bresku fatasíðunni Asos. Fyrsta blaðið kom út árið 2006. Núna skoða um 486.000 manns prentvænu útgáfuna af tímaritinu í hverjum mánuði og um 120.000 manns á netinu.
Óskarinn Mest lesið Peysurnar hans Daða brátt fáanlegar almenningi Glamour Sarah Jessica Parker er drottning Met Gala Glamour Alicia Keys svarar Adam Levine fullum hálsi Glamour Mesti töffarinn í tískuheiminum í dag Glamour Átta flottustu dressin frá Yeezy Season 5 Glamour Sænska verslunin Weekday stekkur á SKAM æðið Glamour Fyrsta forsíða ítalska Vogue eftir andlát Franca Sozzani Glamour Fyrsta sýnishornið frá framhaldi Love Actually loksins birt Glamour Kynþokkafulli fanginn gekk sinn fyrsta tískupall Glamour Frægir fögnuðu með Burberry Glamour