Lífið

Kynjafræði málþing framhaldskólanema: "Ákváðum að gera eitthvað“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
María Lilja Þrastardóttir stýrði einni málstofu á málþinginu
María Lilja Þrastardóttir stýrði einni málstofu á málþinginu
Í dag fór fram í Menntaskólanum í Kópavogi málþing kynjafræðinema í framhaldsskólum. Auk MK voru komnir þarna nema frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, Borgarholtsskóla, Menntaskóla Borgarfjarðar, Flensborg og Kvennaskólanum í Reykjavík. Boðið var upp á ellefu málstofur en María Lilja Þrastardóttir leiddi eina slíka.

„Ég var svo heppin að fá að taka þátt í þessu,“ segir María Lilja. „Í stað þess að flyta hefðbundinn fyrirlestur ákváðum við að reyna að gera eitthvað rótækt sem myndi lifa áfram.“

Úr varð lífleg umræða á Twitter undir kassamerkinu #6dagsleikinn. Jafn vel mætti segja að þetta væri í raun Kynlegar athugasemdir settar í 140 stafabil. „Þessi hugmynd kviknaði og eftir lýðræðislega kosningu varð #6dagsleikinn fyrir valinu. Þetta minnir aðeins á EverydaySexism sem hefur verið til erlendis.“

Að undanförnu hefur jafnréttisbaráttan orðið sýnilegri og sýnilegri á samfélagsmiðlum. Stutt er síðan #FreeTheNipple átakið skók samfélagið og á svipuðum tíma í fyrra var hópurinn Kynlegar athugasemdir stofnaður á Facebook. Skýring Maríu Lilju á því hvernig standi á því að baráttan sé að færast meir og meir inn á samfélagsmiðla er einföld.

„Þetta er ungt fólk sem er að taka við sér og samskipti þess fara að miklu leiti fram í gegnum tæknina. Þau vilja fá upplýsingar og fá þær hratt og samfélagsmiðlarnir eru fullkomnir í þetta verk. Þetta ber vott af því hvert samfélagið er komið,“ segir María Lilja.

Að neðan má svo sjá öll ummæli sem birt hafa verið á Twitter í dag undir merkinu #6dagsleikinn

Tengdar fréttir

Þreyttar á bröndurum og orðræðu sem sýna kvenfyrirlitningu

„Það koma erfiðir femíniskir dagar en svo verður maður bjartsýnni, þegar maður sér viðbrögð sem þessi,“ segir ung kona sem stofnaði hóp á Facebook þar sem fólk er hvatt til að deila reynslu sinni af uppákomun þar sem kyn fólks er látið skipta máli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.