Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 21:31 Móðir Karls Bushby, Angela Bushby, tók á móti honum eftir 28 ára ferðalag á æskuheimili hans í Hull í Englandi. Vísir/Getty Hinn 57 ára breski ævintýrakappi Karl Busby hefur lokið 50 þúsund kílómetra göngu sinni frá Suður-Ameríku til Bretlands eftir 28 ár.
Bushby lagði af stað í ferðalagið 1998, þá 29 ára gamall, frá Punta Arenas í Síle heim til Englands. Hann setti sjálfum sér tvær reglur: hann mætti ekki snúa aftur heim fyrr en að ferðinni væri lokið og að hann mætti ekki nýta sér nein farartæki til þess að komast á leiðarenda. Fólk safnaðist saman í Hull til þess að taka á móti ferðalanginum er hann lagði af stað síðasta spölinn heim til móður sinnar, Angelu Bushby. Þau höfðu samið um að hún biði hans og tæki á móti honum á æskuheimilinu í Hull. „Það er gott að vera kominn heim. Þetta er súrrealískt,“ hefur BBC eftir Bushby. Fjöldi fólks fylgdi Bushby síðasta spölinn heim á leiðarenda.Vísir/Getty Aðspurður af blaðamönnum sagðist hann loks vera búinn að leggja skóna á hilluna. Nú vinni hann að því að skrifa bók um ferðalög sín og að heimildarmynd ásamt þýska kvikmyndagerðarmanninum Werner Herzog. Á leiðinni þræddi hann fjórar heimsálfur en stundum þurfti hann að stinga sér til sunds til þess að komast leiðar sinnar. Meðal annars synti hann þrjú hundruð kílómetra í Kaspíahafi til þess að komast frá Kasakstan til Aserbaídjan í október 2024 og Ermasundið í byrjun október síðastliðins. Af þeim 28 átta árum sem hann var að heiman fóru fimmtán í gönguna sjálfa. Ýmislegt hefði sett strik í reikninginn svo sem vegabréfsáritanir og kórónuveirufaraldurinn og tilheyrandi ferðatakmarkanir.
Ferðalög Bretland Síle Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“