Tónlist

Of Monsters And Men senda frá sér nýtt lag

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Of Monsters And Men
Of Monsters And Men vísir
Hljómsveitin Of Monsters And Men hefur sent frá sér nýtt lag af væntanlegri breiðskífu sinni. Lagið heitir I Of The Storm og verður ellefta lagið á plötunni Beneath The Skin sem kemur út 8. júní.

Lagið er ekki hugsað sem næsta smáskífa plötunnar en sú fyrsta, Crystals, hefur fengið góðar viðtökur. Aðeins er verið að gera aðdáendum sveitarinnar kleift að heyra meira af plötunni. Næsta smáskífa er þó væntanleg áður en langt um líður.

Förðunarfræðingurinn og leikarinn Atli Freyr Demantur er í forgrunni í myndbandinu en líkt og textamyndbandið við Crystals er það framleitt af Tjarnargötunni. Hægt er að horfa á myndbandið og hlusta á lagið hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.