Forsíðuna prýðir ofurfyrirsætan Vlada Roslyakova en hún var tekin af okkar eigin Silju Magg ásamt vel völdu úrvalsliði í New York. Forsíðan tengist 10 blaðsíðna myndaþætti eftir Silju þar sem litadýrðin ræður för.
Inn í blaðinu má meðal annars lesa allt um sumartískuna sem við Íslendingar getum loksins leyft okkur að klæðast, umfjöllun um súpermömmumýtuna með reynslusögum frá flottum mæðrum, misheppnuð húðflúr koma við sögu, hvaða tala er rétt tala þegar kemur að bólfélögum og innlit inn í smekklegasta skóla landsins.

Förðunarkaflinn er glæsilegur að vanda þar sem við ráðleggjum hvað er best að taka með í snyrtibuddunni í fríið ásamt flottum myndaþætti frá íslenska ljósmyndaranum Kára Sverriss þar sem farið er yfir helstu förðunartrendin þetta sumarið.

Ekki missa af glæsilegu Glamour í öllum helstu verslunum á morgun - pantaðu áskrift hér.
Fylgstu með Glamour á Facebook og Instagram.