Fagurt syngur svanurinn á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði 30. júní 2015 10:45 Fiðlusnillingurinn Jamie Laval.
Þjóðlagahátíð á Siglufirði fer fram dagana 1.-5. júlí í sextánda sinn. Dagskráin hefst með fjallgöngu sem farin er frá Ráðhústorginu klukkan 13 á miðvikudag og lýkur með Stjörnustríðstónleikum Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins í Siglufjarðarkirkju klukkan 14 á sunnudag.Öyonn Gröven.Margur undrast að hægt skuli vera að halda alþjóðlega tónlistarhátíð árlega í litlu plássi á hjara veraldar. Helsta ástæðan fyrir því er sú, að á Siglufirði myndast einstakt andrúmsloft meðan á hátíðinni stendur, innlendir sem erlendir gestir skapa með sér samhljóm sem aðeins kviknar í þröngum fjallasal norður við heimskautsbaug. Á lognkyrrum sumarkvöldum skín gleði úr hverju andliti og allt er sem standi í stað, fuglar þagna, aldan kyrrist, sumarnótt á Siglufirði er einstök uppspretta friðsældar og gleði.Söngkvartettinn Kvika.Á Þjóðlagahátíðina á Siglufirði er að þessu sinni von á hópi frábærra tónlistarmanna. Frá Noregi kemur söngkonan Elisbeth Holmertz ásamt fríðum flokki hljóðfæraleikara að flytja tónlist frá tímum Ólafs helga Noregskonungs, bandaríski fiðlusnillingurinn Jamie Laval strýkur skosk þjóðlög af strengjum, Silver Sepp frá Eistlandi hamrar ásamt Kristiinu Ehin á ryðgaða nagla og kennir eistneska þjóðdansa. Þá leika portúgölsku tónlistarmennirnir Joao Afonso og Filipe Raposo ástar- og byltingarsöngva landa síns José Afonso. Á hátíðinni má heyra finnskt klezmer, einnig lög sem hin sænska Mónika Zetterlund gerði vinsæl á sínum tíma og loks verða kenndir dansar sem nutu vinsælda í Danmörku á 18. öld – og þar með einnig á Íslandi.Margrét Eir í Thin Jim.Íslensk alþýðulög eru sem fyrr í brennidepli á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Rósa Jóhannesdóttir og fjölskylda kveða vísur handa börnum, Hallveig Rúnarsdóttir syngur sönglög Sigursveins D. Kristinssonar og fleiri íslenskra tónskálda. Söngkvartettinn Kvika fer með tvísöngsstemmur og fjórradda sönglög og Hundur í óskilum kemur með Lúðrasveitina Svaninn með sér norður til þess að flytja rjómann af vinsælustu lögum sínum. Hin síunga Heddý úr Stykkishólmi vermir hjörtun með vinsælum dægurlögum og síðast en ekki síst frumflytur Sinfóníuhljómsveit unga fólksins nýjan fiðlukonsert eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, sem byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum. Einleikari er Sólrún Gunnarsdóttir. Siglufjörður er heimili íslenska þjóðlagsins. Þar bjó sr. Bjarni Þorsteinsson í hálfa öld og gaf út þjóðlagasafn sitt fyrir rúmum 100 árum.Silver Sepp og Kristiina Ehin frá Eistlandi.Vonandi munu fjölmargir láta verða af því að heimsækja síldarbæinn í norðri fyrstu dagana í júlí og hlýða á svanina syngja meðan sólin stráir geislum sínum yfir lognkyrran fjörðinn. Gunnsteinn Ólafsson er listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði. Nánar um Þjóðlagahátíðina á Siglufirði á folkmusik.is.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira