Stelpurnar töpuðu á flautukörfu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júlí 2015 15:34 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, leikmaður Íslands, skoraði sex stig í leiknum. vísir/andri marinó
Ísland mátti þola naumt tap gegn Finnlandi, 78-76, á æfingamóti sem staðið hefur yfir í Danmörku síðustu daga. Finnar tryggðu sér sigur með flautukörfu en áður hafði Bryndís Guðmundsdóttir jafnað metin á vítalínunni þegar tíu sekúndur voru til leiksloka. Ísland byrjaði leikinn af miklum krafti og var með forystu í hálfleik, 45-33, eftir að hafa haldið finnska liðinu í aðeins tíu stigum í öðrum leikhluta. Finnar náðu sér betur á strik í síðari hálfleik en engu að síður var forysta Íslands ellefu stig þegar fjórði leikhluti hófst, 64-53. Finnarnir voru fljótir að saxa á forystu Íslands og síðustu mínúturnar voru jafnar og spennandi. Finnland komst fyrst yfir þegar 20 sekúndur voru eftir, 76-74, og reyndust svo sterkari í blálokin sem fyrr segir. Helena Sverrisdóttir var stigahæst hjá Íslandi með 29 stig en hún spilaði í 35 mínútur í dag. Hún var einnig með níu fráköst, fjórar stoðsendingar og fjóra stolna bolta. Sara Rún Hinriksdóttir kom næst með fjórtán stig, fimm fráköst og fjórar stoðsendingar. Aðrir leikmenn skoruðu minna en tíu stig. Ísland vann Danmörku í framlengingu í fyrsta leik sínum á mótinu en töpuðu síðan fyrir Dönum í gær.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Mun Conte taka við Manchester United? Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira