Tónlist

Drengirnir í One Direction á leiðinni hver í sína áttina

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Drengirnir í One Direction á sviði.
Drengirnir í One Direction á sviði. vísir/getty
Ef þú ætlar þér að vera öruggur um sjá One Direction á sviði þá er innan skamms rétti tíminn til þess. Séu heimildir The Guardian réttar verður tónleikaferðalag þeirra núna það síðasta þeirra í bili.

Er ferðalaginu lýkur munu þeir Harry, Liam, Louis og Niall fara hver í sína áttina og taka sér hvíld frá hvor öðrum í ár hið minnsta. til að einbeita sér að sólóverkefnum.

„Þeir hafa starfað saman í fimm ár sem er heil eilífð í strákabandaárum. Þeir eiga skilið að fá í það minnsta árs hvíld á hvor öðrum,“ segir heimildarmaður blaðsins. Hann bætir því að vísu við að hljómsveitin sé ekki að hætta en það sé óvíst hvenær þeir komi saman aftur.

Síðustu tónleikar sveitarinnar, í bili að minnsta kosti, verða í Sheffield þann 31. október næstkomandi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.