Nú er hinsvegar á leiðinni ný, og fágaðari útgáfa af þessari frægu bók. Í stað þess að leita að Valla, þá leitar þú að Kalla, Karl Lagerfeld.
Annar höfundur bókarinnar er Stacey Caldwell, aðstoðarforstjóri tískumerkisins Thakoon. Hún segir hugmyndina hafa komið þegar hún sá þegar fólk hitti Karl á förnum vegi í París, að þá lét það eins og það væri eina fólkið í veröldinni sem væri það heppið að hitta hann. Fimm mínútum seinna myndi leikurinn svo endurtaka sig.
Í bókinni hefur röndóttu peysunni verið skipt út fyrir einkennisklæðnað Lagerfeld; svört, þröng jakkaföt, hvít skyrta, svart bindi og sólgleraugu.

Það skemmtilega við bókina er að á meðan þú leitar að Kalla, þá eru í þvögunni þónokkrir þekktir einstaklingar. Fatahönnuðirnir Pheobe Philo og Riccardo Tici ásamt fyrirsætunni Lily Aldridge.
Áhugasamir geta pantað bókina fyrirfram hér, en hún kemur út 15. september.
Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.