Blind: Pabbi rétti maðurinn fyrir landsliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. október 2015 09:15 Vísir/Getty
Daily Blind, varnarmaður Manchester United og hollenska landsliðsins, segir að faðir hans, Danny, eigi að halda starfi sínu sem landsliðsþjálfari þó svo að Hollandi myndi mistakast að komast á EM í Frakklandi. Holland er í sama riðli og Ísland í undankeppninni en er nú í fjórða sæti og á í harðri baráttu við Tyrki um það þriðja. Ísland og Tékkland eru komin áfram en þriðja sætið veitir þátttökurétt í umspilskeppninni í næsta mánuði. Holland þarf helst að vinna báða leiki sína, gegn Kasakstan og Tékklandi, og stóla á að Tyrkland misstígi sig í öðrum sinna leikja. „Þetta er erfið spurning en ég tel að þjálfarinn eigi að halda starfi sínu eftir EM 2016, jafnvel þótt okkur mistakist að komast til Frakklands,“ sagði Blind yngri við hollenska fjölmiðla. „Ég styð alltaf við bakið á landsliðsþjálfaranum. Ég gerði það þegar Louis van Gaal var í því starfi sem og hjá Guus Hiddink.“ Danny Blind tók við starfinu í sumar eftir að Hiddink hætti en Holland tapaði fyrir Íslandi í fyrsta leik sínum undir stjórn Blind eldri. „Við skulum ekki gleyma því að hann tók við liðinu á erfiðum tíma. Ég vissi vel að hann yrði gagnrýndur enda ekki von á öðru. Það truflar mig ekki og það truflar föður minn ekki heldur.“Holland mætir Kasakstan á morgun en Tékklandi á þriðjudag.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira