AmabAdamA vekur athygli á matarsóun Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 9. október 2015 09:15 Um þriðjungur þess matar sem ætlaður er til manneldis í heiminum endar í ruslinu. Hljómsveitin AmabAdamA leggur sitt lóð á vogarskálarnar og gefur út lag í dag sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um málefnið. „
Það eru margir farnir að vekja athygli á matarsóun og reyna að sporna gegn henni og breyta þessari þróun,“ segir Steinunn Jónsdóttir önnur söngkona hljómsveitarinnar AmabAdama. Lagið, sem kemur út í dag og hefur ekki enn hlotið nafn, er gert í samstarfi við Kvennfélagssamband Íslands sem hafði samband við hljómsveitina og bað þau um aðstoð við að vekja athygli á málefninu en þriðjungur þess matar sem ætlaður er til manneldis í heiminum endar í tunnunni og það eru um 1,3 milljarðar tonna á ári. „Við sögðum bara já. Þetta er alveg eitthvað sem liggur okkur á hjarta. Við ákváðum að semja þetta lag svolítið út frá okkur. Við erum alveg þessi kynslóð sem er svolítið gjörn á að kaupa bara nýtt í staðinn fyrir að nýta afganga. Þannig þetta var líka vakning fyrir okkur að temja okkur betri siði.“ Hún segir þau í hljómsveitinni leggja áherslu á að tónlistin búi yfir einhverskonar boðskap enda tónlistin kjörin miðill til þess að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri líkt og fjöldi tónlistarmanna hefur nýtt sér í aldanna rás. „Til dæmis er Gaia lag sem fjallar um að við þurfum að fara betur með náttúruna. Við erum samt ekkert að predika lög og reglur yfir fólki en við reynum að semja lög með einhverjum boðskap sem liggur okkur á hjarta og hefur vonandi einhver áhrif.“ Lagið er samið af Gnúsa Yones og hann og Steinunn sömdu textann í sameiningu. Steinunn segir lagið halda í reggístemninguna sem hljómsveitin er þekkt fyrir og söngvararnir þrír skipti á milli sín erindum í laginu, líkt og í smellinum Hossa hossa sem kom út sumarið 2014. Hún segir verkefnið vissulega hafa vakið þau til umhugsunar um matarsóun og hversu stórt vandamál hún er. „Maður kaupir oft of mikið inn. Við fórum kannski og gerðum stórinnkaup einu sini í viku og svo rann fullt út áður en við náðum að klára það. Við erum bara lítil fjölskylda með tveggja ára strák sem fær morgunmat á leikskólanum þannig það hentar okkur kannski ekkert að vera að gera einhver risainnkaup einu sinni í viku,“ segir Steinunn að lokum.Texti Lagsins:Vaknaði upp við vondan draum í þarsíðustu vikulangaði í gott salat en átti ekki paprikustóð í frekar langan tíma algjörlega ráðþrotaþar til ég ákvað að skoða í skápana hvað þar mætti nota.Ætti kannski út í búð að hlaupa,þar sem allt má kaupahún er opin bæði nótt og dag.Nei! um að gera að nýta afgangaofan'í maga svangabætum með því okkar neyslu háttalag.Ég á alveg frekar auðvelt með að leyfa mér að gleyma,að margt það sem ég eyði í var ekki ræktað hérna heima.Heldur hefur það kannski ferðast mörg hundruð kílómetraég kaupi það en klára ekki því mig langar í eitthvað betra.Best að labba út í búð og kaupa bara það sem að maður þarfog það sem að maður þarf verður það sem ofan'í magan hvarfá bágt með að horfa á fulla ruslafötuna mína af matvil helst takmarka ruslið við mylsnurnar á borðinu þar semég sat.Watagwan mann,gemmér ljóta bananann,þó hann líti illa út þá er hann algjört namminamm,stundum mat mann nota kann sem að í gær útrannef hann lyktar vel þá gerir hann mann ekki sjúkanog getur verið algjört nammmm.Við skulum ekki sóa matnum,veitum athygli öllu því sem hefur verið sagt umáhrif þess á jörðina sem að okkur er svo annt umverum meðvitaðri um það sem er að ské.Ég pæli stundum í því að þegar að amma mín var ungát fólk reiktan sviðakjamma og súrsaðan hrútspungfékk epli einu sinni á ári og naut hvers einasta munnbita.Ætli sá matinn frekar klári sem að þarf fyrir honum að strita?Fleira fólk og meiri neyslahraðari framleiðslafylgjum því sem stendur umbúðunum áen það má alveg draga stimpilinn í efaum að gera að opna og þefaog með því kannski komast sóun hjá.Því það er glatað,hversu mörg landsvæði á jörðinni maðurinn hefur skaðað,til að rækta meir en er ekki nú úr meira en nóg að hafa?Ættum að taka höndum saman og temja okkur meiri aga,nýta matinn betur, henda minna og vandamálið laga.
Tónlist Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Lífið Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Fleiri fréttir Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Sjá meira