Besta sóknin og besta vörnin mætast í Eyjum á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2015 15:30 Það mun reyna á Evu Margréti Kristinsdóttur og Gróttuvörnina í kvöld. Vísir/Valli
Topplið Olís-deildar kvenna í handbolta mætast í Vestmannaeyjum annað kvöld þegar topplið ÍBV tekur á móti Íslandsmeisturum Gróttu í síðasta leik áttundu umferðar. Bæði liðin hafa fullt hús eftir sjö leiki en þau hafa farið ólíkt að við að landa sigrunum í vetur. Eyjakonur hafa skorað mest allra liða í deildinni eða 222 mörk í 7 leikjum sem gera 31,7 mörk að meðaltali. Gróttuliðið var hinsvegar aðeins í sjöunda sæti yfir flest mörk skoruð fyrir áttundu umferðina. Fyrir leiki liðanna í áttundu umferð höfðu því sex lið skorað fleiri mörk en Grótta eða lið ÍBV (1. sæti), Fram (3. sæti), Selfoss (5. sæti), Hauka (4. sæti), Vals (5. sæti) og Stjörnunnar (7. sæti). Grótta var ekki einu sinn eitt í sjöunda sætinu því Fylkisliðið hafði skorað jafnmörg mörk. Sunna María Einarsdóttir er markahæsti leikmaður Gróttuliðsins með 34 mörk en þrjár Eyjakonur hafa skorað meira en hún þar af hefur Vera Lopes skorað 54 mörk í fyrstu sjö leikjum ÍBV í vetur. Þegar kemur að varnarleiknum þá átti hinsvegar ekkert lið roð við Gróttukonur sem hafa aðeins fengið á sig 116 mörk í fyrstu sjö leikjunum eða bara 16,6 mörk að meðaltali í leik. Gróttukonur voru með fimmtán marka forskot á næsta lið sem var Valur (131 mark á sig eða 18,7 í leik) og hafa fengið á sig 50 mörkum færra en Eyjakonur í fyrstu sjö umferðunum. Eyjaliðið var líka bara í sjöunda til áttunda sæti yfir fæst mörk fengið á sig í fyrstu sjö umferðum Olís-deildar kvenna í vetur.Flest mörk skoruð í 1. til 7. umferð Olís-deildar kvenna:1. ÍBV 222 2. Fram 204 3. Selfoss 203 4. Haukar 199 5. Stjarnan 184 6. Valur 180 7. Fylkir 1667. Grótta 166 9. Fjölnir 159Fæst mörk fengin á sig í 1. til 7. umferð Olís-deildar kvenna:1. Grótta 116 2. Valur 131 3. Fram 137 4. Hk 153 5. Stjarnan 155 6. Haukar 160 7. FH 1667. ÍBV 166 9. Selfoss 174 9. KA/Þór 174
Olís-deild kvenna Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira