230 milljarða viðsnúningur á 5 árum Svavar Hávarðsson skrifar 19. nóvember 2015 07:00 HB Grandi fer langt með að endurnýja sinn skipaflota allan á næstu árum. Í nýrri greiningu segir að gera megi ráð fyrir endurnýjun hjá stórum sjávarútvegsfyrirtækjum á komandi árum. vísir/stefán
Eiginfjárstaða sjávarútvegsfyrirtækja fór úr því að vera neikvæð um 80 milljarða króna í árslok 2008 í að vera jákvæð um 107 milljarða króna í árslok 2012 og 150 milljarða króna í árslok 2013. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri greiningu Sjávarklasans á Íslandi um efnahagsleg umsvif og afkomu sjávarklasans á Íslandi. Þar segir að þetta fjárhagslega svigrúm sé ein helsta ástæða þess að nýfjárfestingar hafa tekið við sér á allra síðstu árum, þótt fleira komi þar til. Nýfjárfestingar koma ekki síst fram í endurnýjun fiskiskipaflotans. Alls hefur verið tilkynnt um nýsmíði 12 fiskiskipa sem væntanleg eru til landsins á árunum 2015 til 2017, en samanlögð fjárfesting í þessum skipum nemur minnst 35 milljörðum króna. Um er að ræða níu ísfisktogara, einn frystitogara og tvö uppsjávarskip. Fimm skipanna eru á vegum HB Granda og þrjú á vegum Samherja og ÚA en FISK Seafood, Rammi, Hraðfrystihúsið-Gunnvör og Vinnslustöðin eru með eitt skip í smíðum hvert. „Tilkoma svo margra nýrra skipa mun hafa markverð áhrif á íslenskan sjávarútveg, jafnt til kostnaðarlækkunar og verðmætaaukningar. Nýju skipin eru tæknilega fullkomnari og afkastameiri en þau gömlu og í mörgum tilfellum kemur eitt nýtt skip í stað tveggja eldri,“ segir í greiningunni.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Sjá meira