Fjórar systur á leið með landsliðinu til Ungverjalands Óskar Ófeigur Jónsson. skrifar 19. nóvember 2015 06:00 Systurnar í landsliðinu. Frá vinstri: Helena Sverrisdóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir. Fréttablaðið/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta flaug í morgun út til Ungverjalands þar sem liðið mætir heimastúlkum á laugardaginn í fyrsta leik í undankeppni EM. Ívar Ásgrímsson, þjálfari liðsins, valdi í gær þær tólf stelpur sem spila fyrsta Evrópuleik liðsins í sex ár. Það vekur vissulega athygli að fjórar systur eru í hópnum að þessu sinni. Það eru landsliðsfyrirliðinn Helena Sverrisdóttir og yngri systir hennar, Guðbjörg Sverrisdóttir. Helena sem er 27 ára spilar með Haukum en hin 23 ára gamla Guðbjörg er fyrirliði Valsliðsins. Þær unnu báðar Íslandsmeistaratitilinn með Haukum. Hinar systurnar í tólf manna hópnum eru Gunnhildur Gunnarsdóttir og yngri systir hennar, Berglind Gunnarsdóttir, sem urðu saman Íslandsmeistarar með Snæfelli síðasta vor. Berglind, sem er 22 ára, er annar tveggja nýliða liðsins ásamt Bergþóru Holton Tómasdóttur en hin 25 ára gamla Gunnhildur hefur verið fastamaður í landsliðinu frá því að það var endurvakið árið 2012. Helena og Guðbjörg léku sinn fyrsta landsleik saman í fyrra og hafa verið í landsliðinu í öllum sex leikjum liðsins á þessu ári. Þetta verða ekki fyrstu systurnar til þess að spila í Evrópuleik með íslenska kvennalandsliðinu en Sigrún Sjöfn og Guðrún Ósk Ámundadóttir léku saman í sex Evrópuleikj- um á árunum 2008 til 2009.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira