Lífið

Fullt af nýjum nöfnum kynnt á ATP

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mudhoney á sviðinu á Ásbrú í sumar.
Mudhoney á sviðinu á Ásbrú í sumar. VÍSIR/ÓKÁ
Tónlistarhátíðin ATP á Íslandi kynnir í annað sinn nöfn framúrskarandi listamanna sem koma fram á tónlistarhátíðinni næsta sumar á Ásbrú dagana 1. til 3. júlí 2016.

Sleep, Thee Oh Sees, TY SEGALL and THE MUGGERS, Angel Olsen, Les Savy Fav og Tortoise eru nýjustu viðbæturnar á dagskrá ATP sem skartar nú þegar sjálfum meistara hryllingsmyndanna, hinum goðsagnakennda John Carpenter, sem  í fyrsta sinn á ferlinum flytur tónlist sína opinberlega.

Rithöfundurinn, ljóðskáldið og tónlistarkonan Anika (Invada, Stones Throw) mun koma fram með líbísku söngkonunni og lagahöfundinum Yasmine Hamdan, Blanck Mass mætir en það er sólóverkefni sem Benjamin John Power úr Fuck Buttons ber ábyrgð á. Argentínska dúóið Mueran Humanos sem býr nú í Berlín kemur einnig en þau  gefa út hjá ATP Recordings.

Að lokum hafa Örvar Smárason & Gunnar Tynes (múm) verið bókaðir á hátíðina en þeir munu spila tónlist undir sýningu myndarinnar ‘Menschen am Sonntag’ (People on Sunday) – en þetta er þýsk þögul kvikmynd síðan 1930 sem er byggð á handriti Billy Wilder. Einnig er vert að geta þess að hinn virti uppistandari Stewart Lee mun bregða undir sig betri fætinum en hann kemur sjaldan fram erlendis.

Tilkynnt verður um fleira listafólk og hljómsveitir sem koma fram á ATP á Íslandi 2016 síðar.

Listi yfir þá listamenn og hljómsveitir sem hafa staðfest komu sína næsta sumar:

John Carpenter

Sleep

Thee Oh Sees

TY SEGALL and THE MUGGERS

Angel Olsen

Les Savy Fav

Tortoise

Anika

Yasmine Hamdan

Blanck Mass

Mueran Humanos

Örvar Smárason & Gunnar Tynes (múm) spila undir Menschen am Sonntag

Stewart Lee með uppistand og grín






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.