Fimmföldun í útflutningi á ferskum þorski Svavar Hávarðsson skrifar 25. nóvember 2015 07:00 Sveifla frá frystum fiski til fersks er áberandi um þessar mundir. fréttablaðið/GVA
Gríðarleg aukning hefur orðið á útflutningi ferskra þorskflaka og -bita á síðastliðnum 15 árum. Á milli áranna 1999 og 2014 óx útflutningurinn úr 4.940 tonnum í 23.245 tonn og útflutningsverðmæti úr 5,8 milljörðum í 28 milljarða króna. Þetta kemur fram í skýrslu Arion banka um stöðu og framtíð íslensks sjávarútvegs sem kom út fyrir helgi. Fersk flök og bitar verða sífellt stærri hluti verðmætasköpunar úr þorski, eða sem samsvarar fimmföldun á 15 árum. Það hlutfall sem ferskar afurðir skapa af útflutningsverðmæti annarra tegunda hefur einnig aukist, en árið 2014 voru 33% útflutningsverðmætis ýsu vegna ferskra afurða, 13% karfa, 43% steinbíts og 10% ufsa. Í skýrslunni segir að Frakkland er í dag langstærsti kaupandi ferskra íslenskra sjávarafurða en þangað voru fluttar út ferskar þorskafurðir fyrir 12,6 milljarða króna árið 2014. Ferskar þorskafurðir til Frakklands skapa rúman þriðjung útflutningstekna alls ferskfisks. Útflutningur ferskra afurða til Frakklands hefur raunar aukist mjög hratt að undanförnu, sjöfaldast síðustu sex árin, úr 1.500 tonnum árið 2008 í um það bil 10.000 tonn árið 2014. Árið 2014 voru mikilvægustu markaðslönd ferskra þorskafurða, á eftir Frakklandi, Bretland (4,8 milljarðar króna), Belgía (4,5 milljarðar króna) og Bandaríkin (3,2 milljarðar króna). Eftir mikinn samdrátt árin 2007-2011 hefur útflutningur ferskra þorskafurða til Bandaríkjanna aukist hratt undanfarin fjögur ár. Þar spilar inn í samdráttur í þorskveiðum við austurströnd Bandaríkjanna, bættir flutningar til Bandaríkjanna frá Íslandi og aukin framleiðsla ferskra afurða hér á landi, segir í umfjöllun bankans.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Sjá meira