Fjárfesta fyrir milljarð á árinu Sæunn Gísladóttir skrifar 11. desember 2015 00:01 Svana Gunnarsdóttir er meðeigandi í Frumtaki II. Hún er frumkvöðull að upplagi sem nýtist vel í starfinu. Vísir/GVA
Sjóðurinn Frumtak II var stofnaður í byrjun árs og hefur fjárfest í fjórum fyrirtækjum það sem af er ári; Arctic Trucks í október, Controlant í nóvember, og Activity Stream í byrjun desember. Í gær var tilkynnt um fjárfestingu fyrir 50 milljónir í Appollo X. Forsvarsmenn sjóðsins horfa til þess að fjárfesta í fyrirtækjum sem komin eru af klakstigi og búa yfir miklum möguleikum til vaxtar og útrásar. Þetta á sérstaklega við upplýsingatækni og tæknihönnun þar sem möguleikar til skölunar eru miklir og þar með til verðmætasköpunar. Frumtak II hefur þegar tekið ákvörðun um að fjárfesta fyrir rúman milljarð á þessu ári í fimm fyrirtækjum og er reiknað með að fjárfesta í fjórum til sex fyrirtækjum á næsta ári fyrir allt að 1,5 milljarða króna. Þegar Frumtak I hafði lokið fjárfestingatímabili sínu var hafist handa um að undirbúa stofnun Frumtaks II. „Þetta tók nokkurn tíma þar sem ekki voru allir hluthafar Frumtaks I með í hinum nýja sjóði. Það eru lífeyrissjóðir auk Landsbankans og umsýsluaðilans sem eru hluthafar í Frumtak II. Eins og í fyrri sjóðnum er verið að fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum sem komin eru af klakstigi og eru vænleg til vaxtar og útrásar. Markmiðið er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði þannig að þau skili ekki aðeins góðri ávöxtun til fjárfesta heldur leggi einnig sitt af mörkum til þess að bæta það samfélag sem þau búa í,“ segir Svana Gunnarsdóttir, partner í Frumtaki II.Frumkvöðlar stýra sjóðnumSvana og Eggert Claessen eru meðeigendur í Frumtaki II, og stýra Frumtaki I og Frumtaki II sem fjárfestingastjórar. Þau eru bæði frumkvöðlar að upplagi, og hafa stofnað, rekið og selt eigin fyrirtæki.Fjögur ár til nýfjárfestingarFrumtak II fjárfestir á Íslandi en er heimilt að fjárfesta erlendis að fenginni heimild Seðlabankans sem gæti komið til vegna útrásar eða markaðssóknar fyrirtækja í eigu sjóðsins á erlenda markaði. Frumtak II er tímasettur sjóður, þ.e. hefur afmarkaðan tíma til að fylgja eftir sínum fjárfestingum sem er fjögur ár til nýfjárfestingar og sjö ár í heildina til að fylgja sínum fjárfestingum eftir. Frumtak II annast einnig umsýslu Frumtaks I þar til sjóðnum verður slitið, en sjóðurinn á nú hlut í níu fyrirtækjum. Frumtak II getur fylgt fjárfestingum Frumtaks I eftir með nýju hlutafé og hefur þegar fjárfest í Controlant eins og áður sagði.Mikilvægt að tryggja fjármagnFrumtak gegnir því hlutverki að brúa bilið frá sprotafjármögnun yfir í vaxtarfjármögnun. Frumtak var eini sjóðurinn sem sérhæfði sig á þessu þroskastigi fyrirtækja frá stofnun árið 2009 og fram til byrjunar ársins 2015. „Þetta skiptir miklu máli því að ef ekki er tryggt fjármagn til fyrirtækja til að vaxa, þá ná sprotarnir ekki að verða sá burðarstólpi sem æskilegt er í samfélagi sem vill vera með fjölbreytt atvinnulíf, vel launuð störf og fyrirtæki sem skapa gjaldeyri. Þar með væri kastað fyrir róða þeirri fjárfestingu sem samfélagið hefur þegar sett í sprotafyrirtæki og þá nýsköpun sem þar er að finna,“ segir Svana. „Þó svo að nýsköpunarfyrirtæki séu komin með tekjur og viðskiptavini, ríkir oft á tíðum mikil óvissa um framtíðarvöxt þar sem hann byggir á nýrri vöru, tækni eða markaði. Hér er ekki aðeins um óvissu að ræða er varðar það hvort tekjur skili sér heldur einnig hversu langan tíma það tekur.“ „Sameiginlegt verkefni sjóðanna og frumkvöðlanna er að gera félögin tilbúin til vaxtar og útrásar þannig að þau veki áhuga annarra fjárfesta sem sjá í þeim fjárfestingatækifæri og geti þannig haldið áfram því verki sem íslensku sjóðirnir hafa byrjað. Þetta skapar oft tækifæri fyrir íslensku sjóðina til þess að selja sinn hlut. Þar sem við sérhæfum okkur ekki í fjárfestingum í tiltekinni tegund fyrirtækja þá vinnum við markvisst að því að fá sérhæfða erlenda sjóði til liðs við okkur og eru Meniga og Mentor dæmi um félög sem hafa fengið slíka sérhæfða fjárfesta til liðs við sig,“ segir Svana.Fagnar fjölgun sjóðaSvana fagnar því að á árinu voru þrír nýir sjóðir stofnaðir sem sinna þessu hlutverki sem samanlagt hafa fjárfestingagetu fyrir rúma 11 milljarða. „Að vera eini sjóðurinn var ekki endilega gott þar sem við viljum skapa okkur orðspor fyrir að vera afburða sjóður sem er eftirsóknarvert að vinna með,“ segir Svana. „Þetta hefur styrkt umhverfið þar sem sjóðirnir vinna vel saman í tilteknum fjárfestingum. Við finnum fyrir mikilli aukningu á gæðum þeirra verkefna sem koma til okkar, og tel ég að það megi þakka stuðningsumhverfinu, sem er að gera góða hluti.“Arctic Trucks fyrsta fjárfestinginFrumtak II hefur ásamt núverandi hluthöfum aukið hlutafé Arctic Trucks um 470 milljónir króna sem verða notaðar til frekari uppbyggingar félagsins erlendis. Arctic Trucks er þekkingarfyrirtæki sem byggir á íslensku hugviti og vinnur að því að sérsníða og þróa lausnir fyrir ökutæki sem bæta aksturseiginleika og víkka notkunarsvið þeirra. Arctic Trucks er í dag leiðandi aðili á sínu sviði í heiminum og hafa lausnir fyrirtækisins til dæmis skapað því mikla sérstöðu á Suðurskautslandinu og opnað nýja möguleika í samgöngum á þessari köldustu, þurrustu og vindasömustu heimsálfu veraldar. Arctic Trucks hefur einnig nýtt sérþekkingu sína til að byggja upp ferðaþjónustu á Suðurskautslandinu og á Íslandi þar sem ferðamönnum gefst kostur á að leigja Arctic Trucks-bíla. Frumtak II lagði ásamt fjórum öðrum fjárfestum og sjóðum 270 milljónir króna í félagið Activity Stream sem er íslenskt félag með höfuðstöðvar í Danmörku. Activity Stream þróar sérhæfðan viðskiptahugbúnað sem safnar saman og greinir með sjálfvirkum hætti viðskiptaupplýsingar fyrirtækja til að auðvelda þeim að taka réttar ákvarðanir. Activity Stream hjálpar fyrirtækjum að veita persónusniðna þjónustu á forsendum viðskiptavinarins sem og að ná fram hagræðingu í rekstri með bættri yfirsýn, innsæi og upplýsingagjöf. Frumtak II fjárfesti í fyrirtækinu Appollo X sem hefur þróað appið Watchbox. Watchbox auðveldar fólki að deila myndum og stuttum myndböndum innan hópa. Reiknað er með að þrjú þúsund milljörðum mynda verði deilt í gegnum snjallsíma á árinu 2015. Markaðurinn fer ört vaxandi og það eru mikil tækifæri fólgin í auknum dreifileiðum fyrir myndefni sem mun aukast á komandi árum. Frumkvöðlarnir leggja land undir fót í byrjun janúar og munu flytja til Bandaríkjanna til þess að styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.Fjárfesta í átta til tólf fyrirtækjumSvana segir ánægjulegt að sjá að það eru miklu fleiri fjárfestingatækifæri en þau áttu von á. „Við erum að fjárfesta í fleiri fyrirtækjum en áætlað var á þessu ári.“ Fram undan hjá Frumtaki eru tvær fjárfestingar til viðbótar á árinu – nemur þá heildarfjárfesting ársins milljarði. Einnig er reiknað með að fjárfesta í fjórum til sex fyrirtækjum á næsta ári fyrir allt að 1,5 milljarða króna. „ Í heildina reiknum við með að fjárfesta í átta til tólf fyrirtækjum á fjárfestingatímabili sjóðsins sem er fjögur ár“,“ segir Svana.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira