Seiðandi suðupottur Björn Teitsson skrifar 7. desember 2015 10:00 Halleluwah.
Tónlist Halleluwah Sena 2015 Það ríkti talsverð eftirvænting eftir efni frá tvíeykinu Halleluwah þegar fregnir bárust af tilvist þess. Ósköp skiljanlegt þar sem um var að ræða endurkomu fasteignamógúlsins Sölva Blöndal í tónlistarbransann en hann hafði áður gert garðinn frægan sem helsti lagahöfundur og trommuleikari Quarashi, einnar farsælustu hljómsveitar Íslandssögunnar. Ekki skemmdi fyrir að með honum í tvíeykinu væri Rakel Mjöll Leifsdóttir, söngkona og sjónlistakona með meiru. Samnefnd plata Halleluwah leit dagsins ljós í ár þótt fyrsti singullinn sé nokkurn veginn jafnaldri ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs en hljómsveitin hefur spilað reglulega á tónleikum og vakið mikla lukku – ekki síst fyrir sjónræna upplifun sem er í höndum listakonunnar Rakelar. Hvergi hefur komið fram hvort nafn hljómsveitarinnar sé vísun í lag þýsku krautrokksveitarinnar Can, Halleluhwah. Það væri alveg nokkuð kúl ef svo væri, þar sem tónlist þýsku sérvitringanna var suðupottur sem samanstóð meðal annars af bandarískri djasstónlist, fönki og framúrstefnurokki. Tónlist Halleluwah er einnig suðupottur þar sem hráefnin eru sótt víða að. Indískotið rafpopp undir áhrifum kvikmyndatónlistar 6. og 7. áratugar síðustu aldar með dassi af hip/trip-hoppi Bristol-bylgjunnar og gítarhljómi sem var vinsæll upp úr síðustu aldamótum meðal sveita sem höfðu yfirleitt söngvara að skipa sem klæddist einhvers konar Napóleon-jakka á sviði. Platan geymir níu lög en þeirra vinsælast er líklega lagið Move Me, sem margir kannast við úr nýlegri auglýsingu frá Símanum, og lagið Dior, trip-hoppskotið lag með kvikmyndatónlistaráhrifum. Takturinn í Move Me virðist vera aðeins hraðari útgáfa af taktinum í Mr. Blue Sky með ELO, sem er auðvitað ekkert einsdæmi. Dior er besta lag plötunnar þar sem lagahöfundurinn Sölvi fær að njóta sín, margslungið, seiðandi lag og söngurinn þokkafullur. Spin er efnilegt lag sem singull, flott notkun á effektum og smá „Madchester“-stemmari sem kemur smá af vinstri kanti en virkar vel. Nico er einnig vel yfir meðallagi og virðist innihalda virðingarvott til Singapore Sling, rokk og ról og sólgleraugu innandyra með öllu tilheyrandi. Hugmynda- og fagurfræðilega gengur þetta allt saman upp og það væri gaman að sjá meira efni koma frá Halleluwah. Á þessari plötu er enga sérstaklega veika punkta að finna en hana vantar fleiri og sterkari slagara, þótt snilldartakta megi finna inn á milli.Niðurstaða: Eigulegur gripur sem inniheldur snilldartakta á köflum.
Menning Mest lesið Rokkar pils sem bol og snýr flíkum öfugt Tíska og hönnun Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble Lífið Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Lífið „Ég elskaði þig í fyrra lífi, ég elska þig í þessu lífi og mun finna þig í næsta“ Lífið Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Tónlist Skringilega stór kaffibolli: „Ég verð aldrei aftur hreinn“ Lífið Brúðarbíllinn gömul dráttarvél frá langafa Lífið Pabbi fyrir tvítugt, ekkill þrítugur, afi um fertugt og veltir rúmum milljarði Áskorun Tjáði sig um ástarsambandið sem splundraði tveimur hjónaböndum Bíó og sjónvarp Próteinríkt avókadó-salat að hætti Önnu Eiríks Matur Fleiri fréttir Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Smashing Pumpkins pumpuðu upp stemningu – en listin varð undir hávaðanum Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Sjá meira