ATMO Select fær 200 milljón króna fjármögnun Sæunn Gísladóttir skrifar 11. desember 2015 10:59 Ívar Kristjánsson er framkvæmdastjóri ATMO Select. Hann var einn af stofnendum CCP. Mynd/aðsend
ATMO Select, sem sérhæfir sig í stefnumarkandi tónlistarmiðlun á fyrirtækjamarkaði, hefur tryggt sér fjármögnum upp á 200 milljónir króna frá íslenska fjárfestingasjóðnum Brunni vaxtarsjóði. ATMO Select er með samninga við fjölda fyrirtækja á Norðurlöndunum, Benelux svæðinu og Þýskalandi, segir í tilkynningu. Tónlistarþjónusta ATMO Select gerir rekstraraðilum í verslunar- og þjónustufyrirtækjum kleift að innleiða tónlistardagskrá sem styður við markmið fyrirtækisins ásamt að styrkja ímynd fyrirtækisins og efla upplifun viðskiptavina þess. Tónlistin er sérvalin og klæðskerasniðin eftir fyrirframgerðri þarfagreiningu og úttekt á vörumerki og markhóp hvers fyrirtækis sem nýtir sér tónlistarþjónustuna. Einnig býður ATMO Select upp á auglýsinga- og tilkynningakerfi sem gerir verslunareigendum kleift að ná eyrum viðskiptavina sinna á meðan þeir eru í verslunarrýmunum. „Það styrkir félagið gífurlega að fá Brunn vaxtarsjóð inn í hluthafahópinn á þeim tíma sem við erum að vaxa á erlendum mörkuðum. Við höfum þróað einstaka streymistækni og tónlistarþjónustu fyrir verslunar- og þjónusturými sem hefur jákvæð áhrif á líðan og neysluhegðun viðskiptavina”, er haft eftir Ívari. „Tæknilausnin okkar samanstendur af hugbúnaði og vélbúnaði sem tengist skýjalausn og miðlar til viðskiptavina okkar sérsniðinni tónlistardagskrá sem hönnuð hefur verið til að styðja við þá upplifun sem þeir vilja skapa í verslunar- og þjónusturýmum sínum. Okkar lausn er lokuð, þ.e.a.s. viðskiptavinir fá sérhannaðan lokaðan spilara sem sér um tónlistarstreymið. Við notfærum okkur svokallaða „store and forward“ tækni sem gerir lausnina nánast ónæma fyrir nettruflunum - ólíkt mörgum þeim lausnum sem við höfum séð á markaðnum sem eru bæði berskjaldaðar fyrir truflunum á netsambandi og inngripi starfsmanna,” segir Ívar Kristjánsson, framkvæmdastjóri ATMO Select í tilkynningu. „Það eru meira en 7 milljónir verslana í Bandaríkjunum og Evrópu og eru tækifærin mikil þar sem tónlistarþjónustunni á þessum markaði er oft illa sinnt. Áskorunin sem blasir við fyrirtækjum eins og ATMO Select er að sannfæra fyrirtæki um mátt tónlistar til að hafa áhrif á neytendur, en mjög fáir eru að nýta sér þann möguleika til fulls.”, segir Árni Blöndal, fjárfestingastjóri Brunns vaxtarsjóðs. Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband frá fyrirtækinu.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira