Dagur dásamlegrar ólyktar runninn upp Guðrún Ansnes skrifar 23. desember 2015 11:00 Skatan smakkast betur en lyktin, staðfestir Úlfar. Hún er að minnsta kosti fjarska falleg blessunin. Fréttablaðið/GVA
Kúnstin að lágmarka skötulyktina segir matreiðslumeistarinn Úlfar Eysteinsson, sem hefur sannarlega marga fjöruna sopið, felst í eldun skötunnar. „Yfirleitt er það þannig með skötuna að láta suðuna rétt svo koma upp, og láta svo sjóða varlega. Ekki vera með neinn fruntagang. Þá ætti fólk að vera nokkuð klárt á að menga ekki mikið,“ útskýrir Úlfar. Hann segir jafnframt mikilvægt að sjóða svo hangikjötið í beinu framhaldi af skötunni, þannig megi koma fýlunni fyrir kattarnef með mjúkum hætti. „Sumir hafa sett viskastykki með ediki yfir pottana til að koma í veg fyrir lyktina, en hvort sem menn gera það eða ekki þá skiptir máli eftir að skatan er tekin upp úr pottinum að hella vatninu strax og láta svo sjóðandi heitt vatn renna eftir að skötuvatnið hefur skolast niður.“Úlfar Eysteinsson veit hvað hann syngur í skötumálum, og Þorláksmessa er hans uppáhaldsdagur. Fréttablaðið/GVAÚlfar segist ætíð hlakka mikið til Þorláksmessunnar, en þessi dagur sé mest spennandi dagur ársins að hans mati. „Maður hittir svo rosalega marga. Hjá okkur rúlla í gegn fimm til sex hundruð manns þá tólf tíma sem við höfum opið,“ segir Úlfar, sem hreinlega iðar í skinninu yfir komandi skötuskenkingum. „Hingað kemur fólk sem hefur komið í tíu, fimmtán eða tuttugu ár, og bókar yfirleitt fyrir næsta ár þegar það er búið að sporðrenna skötuskammti ársins,“ segir Úlfar og bætir svo hlæjandi við: „Við tökum okkur svo til tveimur vikum fyrir Þorláksmessu og hringjum út í þá sem hafa bókað, til að taka stöðuna á hvort nokkuð sé um afföll vegna dauðsfalla.“Hvernig skal haga sér í skötugerð að hætti Úlfars1 Ef ósöltuð, setjið þá slatta af salti. Sjóðið í fimm mínútur.2 Slökkvið undir og látið liggja með lokinu á. Nú hvílir skatan sig.3 Kartöflur, rófur og hamsatólg græjuð.4 Mikilvægt er að hafa með þessu rúgbrauð frá HP á Selfossi og ískalt smjör.5 Drekkið mjólk eða vatn með. Bjór verður sætur með skötu, hvítvín vont og rauðvín kinký. Sleppið því.
Jólamatur Mest lesið Tvö ár í stofufangelsi Lífið Valdi fallegasta karlmanninn Lífið Fréttatía vikunnar: Grand Theft Auto, Neyðarkallinn og fjársvik Lífið „Innsýn í djammlífið og hvernig Gugga í gúmmíbát djammar“ Lífið Elskar að bera klúta Lífið Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Lífið samstarf Bragðlaust eins og skyr með sykri Gagnrýni Kynþokkafyllstu karlmenn landsins Lífið „Ekkert of gott að vera of grannur“ Lífið Laufey tilnefnd til Grammy-verðlauna Lífið Fleiri fréttir Stökkir ostabitar í pistasíuhjúp Djúsí kjúklingasalat á naanbrauði Létt og ljúffengt eplasalat Tiramisu-brownie að hætti Höllu Hryllilega girnilegar hrekkjavökukræsingar Dúnmjúk skinkuhorn með æðislegri fyllingu Elegant eftirréttur sem hlýjar um hjartarætur Bragðgott quesadilla á einni plötu Smjörsteikt bleikja, smjörkennt hvítvín og „alkahólíseraður Texasbúi“ „Táknmynd ítalskrar matargerðar“ Silkimjúk espresso-kaka fyrir helgina „Forréttur sem ég býð öllum upp á“ Sjá meira